Evrópuráðið
Evrópuráðið
Mannréttindakerfi Evrópu var sett á fót með stofnun Evrópuráðsins (CoE) þann 5. maí 1949. Tilgangur með stofnun Evrópuráðsins var verndun mannréttinda, lýðræðis og laga. Einnig var stefnt að því að koma á samningum og samræmi á milli Evrópuríkjanna á grundvelli félagslegra og lagalegra framkvæmda ásamt því að vinna að sameiginlegri evrópskri sjálfsmynd, sem byggjast átti á sameiginlegum evrópskum gildum.
Ríki sem óska eftir því að verða þátttakendur í Evrópuráðinu þurfa að virða mannréttindi og þau grundvallarréttindi sem mannréttindasamningar kveða á um (skylda er að fullgilda Mannréttindasáttmála Evrópu). Einnig þurfa ríki að viðurkenna lýðræðislega stjórnarhætti, byggða á lögum og reglu.
Þann 4. nóvember árið 1950 var Mannréttindasáttmáli Evrópu undirritaður og gekk hann í gildi 3. september árið 1953. Tilgangur sáttmálans var að koma í veg fyrir frekari deilur og átök á milli Evrópuríkja og töldu forvígismenn sáttmálans að virðing fyrir mannréttindum væri ein áhrifaríkasta aðferðin til þess.

