Lög um íslenskan ríkisborgararétt

1952 nr. 100 23. desember

Tóku gildi 1. janúar 1953. Breytt með l. 49/1982 (tóku gildi 1. júlí 1982), l. 62/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 18. júní 1998), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 96/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003) og l. 9/2003 (tóku gildi 1. júlí 2003).

1. gr. [Barn öðlastíslenskt ríkisfang við fæðingu:
 1. ef móðir þess eríslenskur ríkisborgari,
   2. ef faðir þess eríslenskur ríkisborgari og kvæntur móðurinni. Þetta gildir þó ekki ef hjónin voru skilin að borði og sæng á getnaðartíma barnsins.
Barn, sem fundist hefur hér á landi, telst, þar til annað reynist sannara, veraíslenskur ríkisborgari.]1)
   1)L. 62/1998, 1. gr.
2. gr. [Eignist ógift kona, sem er erlendur ríkisborgari, barn hér á landi öðlast þaðíslenskanríkisborgararétt ef karlmaður, sem eríslenskur ríkisborgari, er faðir þess samkvæmt barnalögum.
Eignist ógift kona, sem er erlendur ríkisborgari, barn erlendis með karlmanni sem eríslenskur ríkisborgari getur faðirinn, áður en barnið nær 18 ára aldri, óskað þess við dómsmálaráðuneytið að það öðlistíslenskanríkisborgararétt, og skal hann hafa samráð við barnið hafi það náð 12 ára aldri. Leggi hann fram fullnægjandi gögn, að mati ráðuneytisins, um barnið og faðerni þess öðlast barniðíslenskanríkisborgararétt við staðfestingu ráðuneytisins.]1)
   1)L. 62/1998, 2. gr.
[2. gr. a. [Erlent barn, sem ættleitt er afíslenskum ríkisborgara, með leyfiíslenskra stjórnvalda, öðlastíslenskt ríkisfang við ættleiðinguna ef það er yngra en 12 ára.
Erlent barn, yngra en 12 ára, sem ættleitt er afíslenskum ríkisborgara með erlendri ákvörðun, semíslensk stjórnvöld viðurkenna, öðlastíslenskt ríkisfang við staðfestingu dómsmálaráðuneytisins að ósk ættleiðanda.]1)]2)
   1)L. 62/1998, 3. gr. 2)L. 49/1982, 2. gr.
3. gr. [Útlendingur sem hefur átt hérlögheimili og haft hér samfellda dvöl frá því að hann náði 11 ára aldri, eða frá 13 ára aldri sé hann ríkisfangslaus, öðlastíslenskanríkisborgararétt með því að tilkynna dómsmálaráðuneytinu skriflega þá ósk sína eftir að hann hefur náð 18 ára aldri en áður en hann hefur náð 20 ára aldri.]1)
   1)L. 9/2003, 1. gr.
4. gr. Nú hefur einhver, sem öðlast hefuríslenskt ríkisfang við fæðingu og átt hefur hérlögheimili til fullnaðs 18 ára aldurs, misstíslensks ríkisfangs síns, og fær hann þá ríkisfangið að nýju, hafi hann átt hérlögheimili síðustu 2 árin, með því að tilkynna dómsmálaráðuneytinu skriflega þá ósk sína. …1)
   1)L. 62/1998, 4. gr.
5. gr. [Fái einhver ríkisfang skv. 3. og 4. gr. öðlast jafnframt ógift börn hans undir 18 ára aldri ríkisfangið, hafi hann forsjá þeirra og þau eigilögheimili hér á landi.]1)
   1)L. 62/1998, 5. gr.
[5. gr. a. Dómsmálaráðherra er heimilt, að fenginni umsögnlögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda og [Útlendingastofnunar],1) að veitaíslenskanríkisborgararétt samkvæmt umsókn sem borin er fram af umsækjanda sjálfum, eða forsjármönnum hans hafi hann ekki náð 18 ára aldri, enda fullnægi hann eftirgreindum skilyrðum um búsetu, hegðun og framfærslu:
   A. Búsetuskilyrði.
   
1. Umsækjandi hafi átt hérlögheimili í sjö ár; ríkisborgari í einhverju hinna Norðurlandanna þó einungis í fjögur ár.
   2. Umsækjandi, sem er í hjúskap eða staðfestri samvist meðíslenskum ríkisborgara, hafi átt hérlögheimili í þrjú ár frá giftingu/stofnun staðfestrar samvistar, enda hafi hinníslenski maki haftíslenskanríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
   3. Umsækjandi, sem býr í skráðri sambúð meðíslenskum ríkisborgara og bæði eru ógift, hafi átt hérlögheimili í fimm ár frá skráningu sambúðarinnar, enda hafi hinníslenski ríkisborgari haftríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
   4. Umsækjandi, sem áíslenskan ríkisborgara að öðru foreldri, hafi átt hérlögheimili í tvö ár, enda hafi hiðíslenska foreldri haftríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár.
   5. Umsækjandi, sem verið hefuríslenskur ríkisborgari, en hefur gerst erlendur ríkisborgari, hafi átt hérlögheimili í eitt ár.
   6. Flóttamaður, sem fullnægir skilgreiningu í alþjóðasamningi um stöðu flóttamanna sem gerður var 28. júlí 1951, hafi átt hérlögheimili sem slíkur í fimm ár.
   7. Reglur þessar miðast viðlögheimili og samfellda dvöl hér á landi. Heimilt er að víkja frá því skilyrði þótt dvöl umsækjanda hér hafi verið rofin allt að einu ári vegna tímabundinnar atvinnu eða af óviðráðanlegum ástæðum, svo sem vegna veikinda nákomins ættingja, en þó allt að þremur árum vegna náms erlendis. Sá tími, sem umsækjandi hefur átt hérlögheimili og dvöl, verður þó að vera að minnsta kosti jafnlangur þeim tíma sem hann verður samkvæmt áðurgreindum reglum að uppfylla.
   B. Önnur skilyrði.
   
1. Umsækjandi sé að áliti tveggja valinkunnra manna starfhæfur og vel kynntur þar sem hann hefur dvalist.
   
2. Umsækjandi geti framfleytt sér hérlendis með hliðsjón af þeim upplýsingum sem koma fram í umsókn og hafi ekki þegið framfærslustyrk frá sveitarfélagi síðastliðin tvö ár.
   
3. Umsækjandi hafi ekki sætt varðhalds- eða fangelsisrefsingu eða eigi ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.
Dómsmálaráðherra er einnig heimilt að veitaíslenskanríkisborgararétt barni sem fætt er hér á landi og sannanlega hefur ekki öðlast annanríkisborgararétt við fæðingu og hefur ekki öðlast hann, eða átt rétt til að öðlast hann, þegar umsókn umríkisborgararétt er borin fram. Barnið skal hafa áttlögheimili og samfellda dvöl hér á landi frá fæðingu í að minnsta kosti þrjú ár.
Um börn þeirra sem fáríkisborgararétt samkvæmt þessari grein gilda ákvæði 5. gr., nema öðruvísi sé ákveðið.]2)
   1)L. 96/2002, 59. gr. 2)L. 62/1998, 6. gr.
6. gr. [Alþingi veitirríkisborgararétt meðlögum.
Áður en umsókn umríkisborgararétt erlögð fyrir Alþingi skal dómsmálaráðuneytið fá um hana umsögnlögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda og [Útlendingastofnunar].1)
Eigi sá börn semríkisborgararétt fær meðlögum fer um þau eftir ákvæðum 5. gr., nemalögin láti öðruvísi um mælt.]2)
   1)L. 96/2002, 59. gr. 2)L. 62/1998, 7. gr.
7. gr. 1)
   1)
L. 9/2003, 2. gr.
8. gr. Íslenskur ríkisborgari, sem fæddur er erlendis og aldrei hefur áttlögheimili hér á landi né hefur dvalist hér í einhverju skyni, er af megi ráða að hann viljiíslenskur ríkisborgari vera, missiríslensks ríkisfangs þá er hann verður 22 ára. Þó getur [dómsmálaráðherra]1) leyft, að hann haldi ríkisfangi sínu, ef um það er sótt innan þess tíma. [Hann missir þó ekkiíslensks ríkisfangs verði hann við það ríkisfangslaus.]2)
[Nú missir einhveríslensks ríkisfangs samkvæmt þessari grein og missa þá einnig börn hansíslensks ríkisfangs, sem þau hafa öðlast á grundvelli ríkisfangs hans, nema þau við það verði ríkisfangslaus.]3)
[Dómsmálaráðherra úrskurðar hvort fullnægt er skilyrði 1. mgr. um dvöl hér á landi til að halda ríkisfanginu, leiki á því vafi.]1)
   1)
L. 9/2003, 3. gr. 2)L. 62/1998, 9. gr. 3)L. 49/1982, 6. gr.
9. gr. [Dómsmálaráðherra getur leyst þann sem búsettur er erlendis og er orðinn eða óskar að verða erlendur ríkisborgari undaníslensku ríkisfangi, enda sanni aðili að hann verði innan ákveðins tíma erlendur ríkisborgari, ef hann er ekki þá þegar orðinn það. Eigi hannlögheimili hér á landi verður hann eigi leystur fráíslensku ríkisfangi nema sérstakar ástæður séu til að mati dómsmálaráðherra.
Eigi verður þeim neitað um að verða leystur undan ríkisfangi sem er erlendur ríkisborgari og álögheimili erlendis.]1)
   1)L. 9/2003, 4. gr.
[9. gr. a. 1)]2)
   1)
L. 9/2003, 5. gr. 2)L. 49/1982, 8. gr.
[9. gr. b. Ákveða má, með samningi1) við Danmörku, Finnland, Noreg og Svíþjóð, að eitt eða fleiri ákvæðanna í A–C hér á eftir, skuli fá gildi. Orðin norrænt samningsríki í greininni eiga við það eða þau ríki, sem gerður er við slíkur samningur.
   
A. Þegar beitt er 3. gr. skal metalögheimili í norrænu samningsríki til 16 ára aldurs til jafns viðlögheimili hér á landi. Þó skal sá, sem hlut á að máli, hafa áttlögheimili hér á landi síðustu 5 árin, þegar yfirlýsing er gefin.
   Þegar beitt er 4. gr. skal metalögheimili í norrænu samningsríki til 12 ára aldurs til jafns viðlögheimili hér á landi.
   Þegar beitt er 8. gr. skal metalögheimili í norrænu samningsríki í minnst 7 ár til jafns viðlögheimili hér á landi.
   B. Ríkisborgari í norrænu samningsríki, sem
   
1. hefur öðlastríkisborgararétt þar með öðrum hætti en meðlögum eða samsvarandi hætti,
   2. hefur náð 18 ára aldri,
   
3. hefur áttlögheimili hér á landi síðustu 7 árin, og
   4. hefur ekki á því tímabili verið dæmdur [í fangelsi]2) eða til að sæta öryggisgæslu eða hælisvist samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga, öðlastíslenskt ríkisfang með því að tilkynna dómsmálaráðherra skriflega þá ósk sína. Ákvæði 5. gr. eiga hér við.
   C. Sá sem misst hefuríslensks ríkisfangs, og hefur síðan óslitið verið ríkisborgari í norrænu samningsríki, öðlast ríkisfang að nýju með því að tilkynna dómsmálaráðuneytinu skriflega þá ósk sína, enda hafi hann þá fengiðlögheimili hér á landi. Ákvæði 5. gr. eiga hér við.]3)
   1)Augl. B 468/2000. 2)L. 82/1998, 151. gr. 3)L. 49/1982, 9. gr.
10. gr. Dómsmálaráðherra sker úr ágreiningi um það, hvort maður hafi öðlastíslenskanríkisborgararétt við setningulaga þessara eða fullnægi skilyrðum til að öðlastíslenskanríkisborgararétt með því að lýsa ósk sinni þar um. Skjóta má úrskurði um þetta efni undir úrlausn dómstóla.
Dómsmálaráðherra getur sett nánari reglur um framkvæmdlaga þessara.
[Yfirlýsingu skv. 3. gr., 4. gr. og B- og C-lið 9. gr. b um að maður óski að verðaíslenskur ríkisborgari getur aðeins sá aðili sjálfur gefið en ekki forsjármaður.]1)
Þar sem eigi er annað ákveðið aldursmark ílögum þessum, skal þeim, sem náð hefur 18 ára aldri, heimilt að gefa yfirlýsingu umríkisborgararétt samkvæmtlögum þessum, án tillits til þess, að hann er háður [forsjá]2) annars manns.
   1)L. 9/2003, 6. gr. 2)L. 62/1998, 10. gr.
11. gr. [Barn sem er fætt eftir 1. júlí 1964 en fyrir 1. júlí 1982 og hefði öðlastíslenskanríkisborgararétt ef ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 1. gr.laga þessara, sbr. lög nr. 49/1982, hefði verið í gildi er það fæddist öðlastíslenskt ríkisfang með því að tilkynna dómsmálaráðuneyti skriflega þá ósk sína, enda hafi móðir þess veriðíslenskur ríkisborgari við fæðingu þess og til 1. júlí 1982.
Sá sem óskar að öðlastíslenskt ríkisfang skv. 1. mgr. skal fullnægja ákvæði 8. gr. umlögheimili eða dvöl hér á landi fyrir 22 ára aldur.]1)
   1)L. 9/2003, 7. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. Barn sem fætt er eftir 1. júlí 1964 en fyrir 1. júlí 1982 og hefði öðlastíslenskt ríkisfang ef ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 1. gr.laga umíslenskanríkisborgararétt, sbr. lög nr. 49/1982, hefðu verið í gildi við fæðingu þess færíslenskt ríkisfang er móðir þess gefur um það skriflega yfirlýsingu til dómsmálaráðuneytisins, enda hafi hún forsjá barnsins, séíslenskur ríkisborgari og barnið innan 18 ára aldurs. Barn þarf að lýsa samþykki sínu svo að yfirlýsing sé gild.
Hafi barnið náð 18 ára aldri getur það gefið yfirlýsingu um að það óski eftir að framangreint ákvæði taki til sín, enda hafi móðir þess haftíslenskt ríkisfang frá fæðingu þess til 1. júlí 1982 og barnið fullnægir skilyrðum 8. gr. til að veraíslenskur ríkisborgari.
[Sá sem misst hefuríslensks ríkisfangs samkvæmt upphaflegum ákvæðum 7. gr.laga nr. 100/1952 en hefði haldið því ef greinin hefði verið fallin úr gildi á þeim tíma er hann misstiíslenska ríkisfangið öðlast það að nýju með því að tilkynna dómsmálaráðherra skriflega þá ósk sína fyrir 1. júlí 2007 enda fylgi henni fullnægjandi gögn að mati ráðuneytisins.
Sé viðkomandi háður forsjá annarra annast forsjáraðili tilkynninguna.
Eigi sá sem öðlastíslenskt ríkisfang samkvæmt þessu ákvæði ógift börn undir 18 ára aldri sem hann hefur forsjá fyrir öðlast þau einnig ríkisfangið. Sé barnið orðið 12 ára og hafi erlent ríkisfang skal barnið veita samþykki sitt til að fáíslenskanríkisborgararétt. Samþykkis skal þó ekki krafist sé barnið ófært um að veita það sökum andlegrar fötlunar eða annars sambærilegs ástands.]1)]2)
   1)L. 9/2003, brbákv. 2)L. 62/1998, 11. gr.
 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica