Greinar og heimildir

Á Íslandi hefur lítið verið skrifað um mannréttindi. Hér á Mannréttindaskrifstofunni er að finna bókasafn sem hefur yfir að geyma upplýsingar um mannréttindamál. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á bókasafni Rauða Krossins. Jafnframt því er hægt að finna upplýsingar í hinum ýmsu afmælisritum líkt og:

Ragnarsbók. Afmælisrit til heiðurs Ragnari Aðalsteinssyni, gefið út af Hinu íslenska Bókmenntafélagi. Reykjavík árið 2010.

Guðrúnarbók. Afmælisrit til heiðurs Guðrúnar Erlendsdóttur, gefið út af Hinu íslenska Bókmenntafélagi. Reykjavík árið 2006.

Afmælisriti Gauks Jörundssonar, gefið út af bókaútgáfu Orators í Reykjavík 1994.

Afmælisriti til heiðurs Gunnari G. Schram, gefið út af Almenna Bókafélaginu í Reykjavík 2002.

Einnig var árið 2005 gefin út bókin Mannréttindasáttmáli Evrópu, meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt. Var bókin gefin út af Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og Lagadeild Háskóla Íslands. Í henni er að finna upplýsingar um sértæk réttindi Mannréttindasáttmála Evrópu.

Einnig gæti verið hægt að nálgast greinar um mannréttindi í tímariti Félags laganema í Háskóla Íslands, Úlfljóti og í Tímariti lögfræðinga sem gefið er út af Lögfræðingafélagi Íslands.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica