Trúnaðarmaður fatlaðra
Á hverju starfssvæði málefna fatlaðra má finna Svæðisráð, sem er sjálfstætt og fjölskipað ráð. Svæðisráðið hefur eftirlit með því að á vegum svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, svo og sveitarfélaga, sé fötluðum veitt sú þjónusta sem samræmist markmiði laga um málefni fatlaðra. Það sama á við um þjónustu á vegum félagasamtaka fatlaðra og sjálfseignarstofnana sem vinna að málefnum fatlaðra.
Hvert svæðisráð skipar trúnaðarmann fatlaðra á sínu svæði og fer hann með réttindagæslu fatlaðra.
Trúnaðarmanninum ber að gæta hagsmuna fatlaðra sem búa á sambýlum, vistheimilum fyrir börn og áfangastöðum. Hann skal þar fylgjast með högum fatlaðra að eigin frumkvæði. Skal hann í því skyni heimsækja heimili fatlaðra reglubundið og kynna sér hag hinna fötluðu á sviði einkalífs og fjármuna.
Telji fatlaður einstaklingur að hagur hans sé virtur að vettugi getur hann upplýst trúnaðarmann um það og skal trúnaðarmaðurinn þegar í stað kanna málið með viðeigandi hætti.
Telji aðstandendur fatlaðra, hagsmunasamtök og aðrir sem láta hag hins fatlaða sig varða, að réttur fatlaðra sé ekki virtur, skal tilkynna það trúnaðarmanni sem kannar málið tafarlaust.
Trúnaðarmanni ber að kynna svæðisráði reglulega um störf sín og þau mál sem til hans hafa borist, og afgreiðslu þeirra.
Í sérstökum tilfellum getur svæðisráð falið trúnaðarmanni önnur verkefni er varða réttindagæslu fatlaðra, enda rúmist slík störf innan heildargreiðslu sem um hefur verið samið og þau skerði á engan hátt þá þjónustu sem trúnaðarmanni ber að veita fötluðum á heimilum og stofnunum.
Í raun er það svo að trúnaðarmenn eru hvergi í fullu starfi sem slíkir, heldur er að jafnaði um aukastörf að ræða hjá því fólki sem þessu sinnir[1].
[1] [1] Upplýsingar fengnar úr reglugerð um svæðisráð málefna fatlaðra. Fengið af vef Dóms- og kirkjumálaráðuneytis.

