Kærur einstaklinga

Einstaklingar og hópar, sem telja að stjórnvöld hafi brotið á mannréttindum þeirra, geta undir sérstökum kringumstæðum beint kvörtunum sínum til Sameinuðu þjóðanna. Kæruleiðirnar eru tvenns konar;

1. til Mannréttindanefndar sameinuðu þjóðanna,

2. til samningsnefnda, ef um brot á sérstökum samningum er að ræða.

Helsta kæruleiðin samkvæmt stofnályktunum var sett á fót með ályktun efnahags-og félagsmálaráðsins nr. 1503 frá 1970. Um þekktustu kæruleiðina samkvæmt milliríkjasamningi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna er mælt fyrir um í valfrjálsum viðauka (Optional Protacol) við samning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sem tók gildi 1976.