Mannréttindi og Ísland

Mannréttindi og Ísland er vefsetur um mannréttindamál þar sem ætlunin er að safna saman á einn stað og aðgengilegan öllu markverðu efni um málaflokkinn á Íslandi.

Eitt helsta markmið Mannréttindaskrifstofunnar er að efla virðingu fyrir mannréttindum. Þetta gerir skrifstofan m.a. með því að safna upplýsingum um mannréttindamál, veita aðgang að þessum upplýsingum og koma þeim á framfæri.

Á þessari síðu er m.a. að finna:

  • svör við algengum spurningum um mannréttindi;
  • leiðbeiningar um það hvernig einstaklingar sem telja á sér brotið geta leitað réttar síns;
  • greinar íslenskra og erlendra fræðimanna um mannréttindi;
  • greinar um réttindi tiltekinna hópa s.s. kvenna, barna, fatlaðra o.s.frv.;
  • innlend lög er varða mannréttindi;
  • helstu alþjóðasamninga um mannréttindi;
  • skýrslur og gögn um Ísland frá eftirlitsnefndum Sameinuðu þjóðanna;
  • skýrslur og gögn frá Evrópuráðinu;
  • skýrslur og gögn frá Evrópusambandinu; og
  • úrval dóma alþjóðlegra mannréttindadómstóla og dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í málum gegn íslenska ríkinu.

Mannréttindaskrifstofa Íslands þakkar Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands veittan stuðning við uppbyggingu vefsetursins.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica