Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna
Skipan Navanethem Pillay sem Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna var samþykkt af Allsherjarþinginu þann 28. júlí 2008. Hún tók við embættinu 1. september sama ár.
Navanethem Pillay sem er frá Suður- Afríku var fyrsta konan til að stofna lögfræðiþjónustu í heimahéraði sínu Natal árið 1967. Árin eftir það starfaði hún sem verjandi fyrir hreyfingu gegn aðskilnaðarstefnunni, upplýsti um pyntingar og aðstoðaði við að koma á lágmarksréttindum fyrir fanga á Robben eyju.
Hún vann einnig sem fyrirlesari/kennari við háskólann í KwaXulu-Natal og var síðar skipuð vara-forseti ráðs háskólans í Durban Westville. Árið 1995 þegar aðskilnaðarstefnan hafði liðið undir lok var Navanethem Pillay skipaður dómari við hæstarétt Suður- Afríku ásamt því að vera síðan skipaður dómari við alþjóðlega refsidómstólinn í Rúanda þar sem hún starfaði í 8 ár, þau fjögur síðustu sem forseti (1999-2003). Hún gegndi lykilhlutverki við að setja fordæmi dómstólsins um að nauðgun teldist sem þjóðarmorð, sem og við túlkun hans á tjáningarfrelsinu og hatursáróðri. Árið 2003 var hún svo skipuð dómari við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag þar sem hún starfaði þangað til í ágúst 2008.
Sem meðlimur samtaka kvenna í Suður- Afríku (Women‘s Natioanl Coalition) lagði hún mikið af mörkum til þess að koma ákvæði um jafnrétti í stjórnarskrá landsins, ákvæðið bannar mismunun á grundvelli kynþáttar, trúar og kynhneigðar. Hún var einn af stofnendum ,,Jafnrétti Núna“ (Equality Now) sem eru alþjóðleg samtök um jafnrétti kvenna og hefur jafnframt verið þátttakandi með öðrum samtökum í vinnu þeirra tengdum börnum, frelsissviptum einstaklingum, fórnarlömbum pyntinga og heimilisofbeldis, ásamt ýmsum fleiri efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum réttindum.
Navanethem Pillay fékk bæði BA og LLB prófgráður frá háskólanum í Natal í Suður-Afríku. Hún hefur meistaragráðu í lögfræði og doktorsgráðu í Lögvísindum (Juridical Science) frá Harvard háskóla. Hún fæddist árið 1941 og á tvær dætur.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project