Evrópuráðið
"Evrópuráðinu er ætlað að efla samvinnu og samkennd meðal aðildarríkjanna. Hlutverk ráðsins er að standa vörð um varðveislu mannréttinda, viðhalda stöðugleika og styrkja lýðræðislega stjórnarhætti í aðildarríkjunum. Aðild að ráðinu felur í sér viðurkenningu á að viðkomandi ríki teljist uppfylla grundvallarskilyrði um lýðræðislegt stjórnarfar og virðingu fyrir mannréttindum.
...
Eitt af verkefnum Evrópuráðsins hefur verið gerð alþjóðasamninga, sem meðal annars hafa haft það að markmiði að samræma lög þeirra ríkja sem gerast aðilar að þeim og stuðla enn frekar að samvinnu þeirra. Þessi þáttur í starfi Evrópuráðsins fer ekki hátt í erli daglegrar umræðu en hefur margvíslegar skyldur í för með sér fyrir samningsríkin. Þeim ber að virða ákvæði samninganna í löggjöf sinni og við stjórnarframkvæmd. Með þessum hætti setja samningarnir mark sitt á samtíð okkar og samfélag, einkum þeir samningar sem mæla fyrir um samskipti ríkisins við þegna sína og kveða á um grundvallarréttindi þeirra. Því skiptir miklu að þessir samningar séu almenningi aðgengilegir."
Evrópuráðið lagt fram til undirritunar tæplega 200 samninga sem "átt hafa ríkan þátt í að styrkja mannréttindi og lýðræði og efla samkennd meðal ríkja Evrópu."
Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, af síðu Utanríkisráðuneytis (1999).
Í safni Evrópusamninga á vef Utanríkisráðuneytisins er hægt að nálgast alla helstu mannréttindasamninga Evrópuráðsins.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project