Mannréttindasamningar og yfirlýsingar
Mannréttindasamningar eru milliríkjasamningar, sem ýmist hafa verið gerðir á vegum Sameinuðu þjóðanna eða ríkja á afmörkuðum svæðum. Þeir eru bindandi að þjóðarétti fyrir þau ríki sem hafa staðfest þá. Á grundvelli þeirra starfa ýmist nefndir eða dómstólar til að fylgja því eftir að aðildarríkin standi við skuldbindingar sínar.
Mannréttindayfirlýsingar eru ekki bindandi að þjóðarétti heldur viljayfirlýsingar. Þær eru oft undanfarar bindandi samninga. Sumir fræðimenn telja Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1948 þó bindandi að þjóðarétti því svo títt hafi verið til hennar vísað af leiðtogum þjóða heimsins að hún hafi öðlast vægi réttarvenju.
Hér að neðan er að finna helstu mannréttindayfirlýsingar og samninga sem Ísland á aðild að.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project