Evrópuvika 2015

Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti 2015 fór fram dagana 14.-21. mars. Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samstarfi við ýmsa aðila, stóð fyrir spennandi og fjölbreyttum verkefnum í ár. Lógó Evrópuvikunnar 2015

Hönd í hönd fyrir margbreytileika
Þann 17. mars kl. 11 að morgni, tóku nemendur og starfsfólk yfir 20 grunnskóla um allt land, hönd í hönd í kringum skólabyggingar sínar til að sýna samstöðu með margbreytileika.

Póstkortaverkefni
Ýmsir hópar ungs fólks skrifuðu 1000 póstkort sem voru send til handahófsvalinna viðtakenda í Evrópuvikunni. Skilaboðin voru skrifuð sem hvatning til samstöðu gegn kynþáttafordómum og var viðtakendum boðið að taka þátt í þeirri samstöðu með því að taka mynd af sér með skilaboðunum undir millumerkinu #hondihond.

Málþing –Fordómar og kynþáttamisrétti á Íslandi 21. mars kl. 13 – 15 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Á málþinginu var kynþáttamisrétti rætt frá ýmsum sjónarhornum. Tove Søvndahl Gant talaði um hvaða aðferðum hefur verið beitt á móti kynþáttamisrétti í Evrópu, Cynthia Trililani, Patrycja Wittstock Einarsdóttir, Þórdís Nadía Óskarsdóttir og Einar Már Guðmundsson Málþingið var haldið í samvinnu við Evrópustofu, Rauða krossinn ogMannréttindaskrifstofuReykjavíkurborgar.

Samstarfsaðilar að Evrópuvikunni í ár voru: AFS á Íslandi, Bandalag íslenskra skáta, Evrópustofa, Landssamband æskulýðsfélaga, Rauði krossinn, Reykjavíkurborg og Ungliðahreyfing Rauða krossins.

hönd í höndpóstkortinmálþingið

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16