16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2009

Leggðu þitt af mörkum – Farðu fram á aðgerðir:

Saman getum við bundið enda á ofbeldi gegn konum!

Á morgun, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum, verður alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 19 sinn. Átakinu verður formlega ýtt úr vör með Ljósagöngu til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum og hvetja til aðgerða. Lagt verður af stað frá Þjóðmenningarhúsi kl. 19:00 og gengið niður að Sólfarinu þar sem Friðarsúlan verður tendruð kl. 19:45. Í fararbroddi verða kyndilberar sem láta sig málefnið varða, m.a. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, Jón Páll Eyjólfsson, leikskáld, Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi Íslands, Ragnhildur Gísladóttir, tónskáld og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi á mannamáli.

16 daga átak hefur í frá 1991 unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim nýta átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim.

Enda þótt staða íslenskra kvenna sé sterk á mörgum sviðum þá er kynbundið ofbeldi alvarlegt vandamál hér á landi. Árið 2008 leituðu 547 einstaklingar til Stígamóta en frá upphafi samtakanna til ársloka 2008 hafa alls 5,279 manns leitað þar aðstoðar. 22 % íslenskra kvenna hafa einhvern tíma á ævinni hafa verið beittar ofbeldi af maka eða fyrrverandi maka en 530 konur hafa leitað til Kvennaathvarfs á árinu 2009 - komur til samtakanna eru frá upphafi um 5800.

Í 16 daga mun á fimmta tug stofnana og samtaka sem láta sig málefnið varða standa fyrir margvíslegum viðburðum í því augnamiði að vekja athygli á orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis og krefjast aðgerða.

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16