Hver er galdurinn? Málþing um bataskóla á vegum Geðhjálpar og Reykjavíkurborgar

Hver er galdurinn?

Hvað er bataskóli (Recovery College)? Hvaða árangri hafa bataskólar skilað fólki með geðrænan vanda, aðstandendum, fagfólki og nærsamfélaginu? Hvers vegna er þörf á bataskóla á Íslandi?
Málþing um bataskóla á vegum Geðhjálpar og Reykjavíkurborgar í Gullteigi, Grand Hótel 11. október 2016
Fundarstjóri, Sigríður Arnardóttir.


13.00 – 13.10 Ávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. 

13.10 – 13.20 Hvers vegna bataskóli?
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

13.20 – 14.30 Bataskólinn í Nottingham
Helen Brown, skólastjóri bataskólans í Nottingham, fjallar um batahugmyndafræði (recovery model), stofnun og starfsemi bataskólans í Nottingham http://www.nottinghamshirehealthcare.nhs.uk/nottinghamrecovery-college

14.30 – 15.00 Sýn nemenda/fræðara
Jafningjafræðari við bataskólann í Nottingham, segir frá reynslu sinni af námi og jafningjafræðslu við bataskólann.

15.00 – 15.25 Kaffi

15.25 – 15.40 Bataskóli á Íslandi
Kristjana Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, og Iðunn Antonsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, segja frá undirbúningi við stofnun bataskóla á Íslandi.

15:40 – 15.55 Sýn notanda
Linda Dögg Hólm, ráðgjafi Geðhjálpar, reifar sjónarhorn notenda gagnvart bataskóla á Íslandi.

15.55 – 16.30 Pallborðsumræður
Kári Ragnars frá Klúbbnum Geysi, Edna Lupita frá Hlutverkasetri, Svava Arnardóttir frá Hugarafli, Halldóra Pálsdóttir frá Vin, Lúðvíg Lárusson frá Geðheilsustöð Breiðholts og María Einisdóttir frá Landspítalanum segja frá batamiðaðri nálgun í starfsemi síns félags/úrræðis/stofnunar og sitja fyrir svörum.

Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið í gegnum www.gedhjalp.is/skraning/radstefna/ eða með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda verkefnisstjori@gedhjalp.is. Aðgangseyrir kr. 2.000, frítt fyrir félaga í Geðhjálp. Hægt er að skrá sig í Geðhjálp á www.gedhjalp.is

Slóð viðburðarins á facebook er: 
https://www.facebook.com/events/195328627555447/ 


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16