Heima er best

Heima er best
Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra

Heima er best

drög að húsreglum barna sem vilja halda haus á ofbeldisheimilum

byggðar á reynslusögum hundruða barna sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu.

 

Heima er best að vera sem minnst, því að alls staðar, líka í myrkrinu á skólalóðinni, í ísköldu strætóskýli eða hlaupandi yfir Miklubrautina ertu öruggari en heima.

Samt; heima er best að vera sem mest, því allt það hræðilega sem gerist þegar þú ert heima getur orðið ennþá hræðilegra þegar þú ert þar ekki og stundum er skárra að vita hvað er að gerast heima en að vita það ekki.

Heima er best að muna, þegar hann öskrar ”ég ætla að drepa þig ,helvítis hóran þín” að hann hefur oft öskrað það áður en hann hefur aldrei beinlínis drepið hana svo kannski sleppur það í þetta skipti líka. Ef þú gleymir þessu getur hent að þú farir að grenja eins og aumingi eða pissir í buxurnar og margir hafa lent í vandræðum fyrir minna.

Heima er best, eða öllu heldur nauðsynlegt að hafa allar flóttaleiðir á hreinu í hverju einasta herbergi. Stundum liggur hún út, stundum inn á klósett og stundum inn í skáp eða undir rúm. Þú þarft líka að muna að þó það sé alltaf betra að fela sig með systkinum sínum þá er það ekki alltaf hægt og þó það sé hræðilegt að vera alein í öskrunum þá er það stundum lífsnauðsynlegt.

Heima er best að hafa alla hluti á hreinu og pirra aldrei neinn. Hella aldrei niður mjólk, stilla sjónvarpið aldrei of hátt, fá aldrei lélega einkunn og segja aldrei ljót orð (allavega ekki þegar einhver heyrir til) eða gera neitt annað hættulegt. Ekki svo mikið af því að það komi í veg fyrir að eitthvað hræðilegt gerist heldur meira vegna þess að það hræðilega sem gerist er örlítið minna þér að kenna ef þú passar upp á allt.

Heima er best að muna að orð eru í rauninni ekki neitt, þau eru bara hljóð en ekki hnífar eða grjóthnullungar eins og þér finnst þau samt vera þegar þau fljúga milli veggja í stofunni.

Heima er best taka þátt í gleðistundum með heilum hug, og jafnvel þó þið séuð ennþá hrædd eftir síðustu orustu, sár eftir orðin sem féllu og leið yfir dótinu sem skemmdist. Takið samt þátt í gleðinni eins og ekkert hafi ískorist því mamma og pabbi eiga nógu bágt þó þau sitji ekki uppi með fúl og leiðinleg börn þegar allir eiga að vera glaðir.

Heima er best að gera sér ekki of miklar vonur um að jólin verði gleðileg, að það verði haldið upp á afmælið þitt eða að þið komist heim úr útilegunni án þess að eitthvað komi upp á . Það er best að búast við sem minnstu þá verða vonbrigðin minni ef allt fer í klessu.

Einmitt í dag eru þrjátíu og fjögur ár síðan Kvennaathvarfið opnaði og fyrsta konan flutti inn með syni sínum. Síðan þá hafa rúmlega þrjú þúsund og tvö hundruð börn dvalið í athvarfinu með mæðrum sínum þegar dvölin heima hefur verið þeim óbærileg vegna ofbeldis.

Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf

 


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16