Aðalfundur MRSÍ og kosning stjórnar

Aðalfundur MRSÍ og kosning stjórnar
Margrét, Ellen, Hugrún og Kitty

Aðalfundur Mannréttindaskrifstofu Íslands var haldinn fimmtudaginn sl., 4. maí. Þar var kosið m.a. til nýrrar stjórnar.

Hugrún R. Hjaltadóttir gaf kost á sér í áframhaldandi stjórnarsetu en kemur Ellen Calmon ný inn í gjaldkerastöðu og leysir þar Ragnheiði Sverrisdóttur frá störfum. 
Kitty Anderson var kosin til tveggja ára á síðasta aðalfundi og var því ekki kosið í embætti formanns í ár.

Stjórn MRSÍ skipa: 
Kitty Andersson, formaður
Hugrún R. Hjaltadóttir, varaformaður
Ellen Calmon, gjaldkeri

Óskum við nýrri stjórn til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfi sínu.


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16