Mannréttindi ákveðinna hópa

Stundum er einungis hægt að tryggja mannréttindi allra með því að virða sameiginleg réttindi einstaklinga sem tilheyra sama hópnum. Þegar fjallað er um sameiginleg réttindi eða réttindi sérstakra hópa er til dæmis átt við minnihlutahópa hvers samfélags, en þeir geta falið í sér fólk af ólíku þjóðerni, fatlaða eða þá sem aðhyllast ólík trúarbrögð en meirihluti samfélagsins.

Þegar ákveðinna mannréttinda er krafist er alltaf áhrifaríkast að fólk sameinist og krefjist þeirra í sameiningu. Þó allir einstaklingar hafi rétt á að njóta fundafrelsis þá verða þau réttindi eflaust ekki viðurkennd að fullu nema þeirra sé krafist sameiginlega.

Sum réttindi eru sértæk og eiga við um sérstakan hóp innan samfélagsins, eins og til dæmis réttindi fatlaðra, aldraðra, barna, kvenna og farandverkamanna.

Til þess að lýðræðisþjóðfélag, þar sem mannréttindi eru í heiðri höfð, fái þrifist er mikilvægt að virða og efla mannréttindi ákveðinna hópa.

Hér til hliðar má finna umfjöllun um réttindi ákveðinna hópa

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16