Innlendar stofnanir sem hafa eftirlit með mannréttindum

Á Íslandi er ekki að finna sterkt kerfi stofnana sem hefur eftirlit með að mannréttindi séu virt. Hér á landi starfa í raun þrjár opinberar stofnanir sem sinna mannréttindum auk réttindagælsumönnum fatlaðs fólks. Ekki er að finna hér á landi þjóðbundna mannréttindastofnun sem sinnir mannréttindum á heildstæðan hátt þó Mannréttindaskrifstofa Íslands hafi undanfarin ár sinnt hlutverki slíkrar stofnunar af fremsta megni með fulltingi stjórnvalda.

Hér til hliðar er að finna umfjöllun um umboðsmann Alþingis, umboðsmann barna, Jafnréttisstofu og réttindagæslumenn fatlaðra.

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16