Söguhringur kvenna út á sjó – velkomnar um borð!

Söguhringur kvenna út á sjó – velkomnar um borð!
Söguhringur kvenna

Söguhringur kvenna út á sjó – velkomnar um borð!
Sjóminjasafnið
Laugardag 7. maí kl. 13.30-16.30
Þátttaka er ókeypis

Langar þig að víkka út sjóndeildarhringinn?

Lífið er ferðalag, bæði andlegt og landfræðilegt. *Söguhringur kvenna er vettvangur fyrir konur sem hafa áhuga á að deila menningarlegum bakgrunni sínum með öðrum, skapa saman og spjalla. Laugardaginn 7. maí eru allar konur boðnar á sýningu Sjóminjasafnsins og í kaffi um borð í varðskipið Óðin. Þátttaka er ókeypis.

Menningarlegt landslag hefur áhrif á tilvist okkar og hugsunarhátt. Sú staðreynd að Ísland er eyja umkringd víðáttumiklu hafi, langt frá annarri byggð hefur mikil áhrif á það hvernig þjóðfélag og menning okkar hefur þróast í áranna rás. En hvers konar áhrif hefur landfræðileg einangrun og ofsafengin veðráttan haft á okkur sem einstaklinga og sem þjóðfélag? Og hvernig hafa landfræðileg áhrif mótað aðrar þjóðir?

Við byrjum á að ganga um sýningar Sjóminjasafnsins, förum síðan í leik þar sem við veltum fyrir okkur orðum á mismunandi tungumálum yfir ýmsa hluti sem tengdir eru sjávarútvegi. Einnig kíkjum við á sýningu sem fjallar um sjósókn kvenna frá upphafi landnáms til dagsins í dag. Við munum enda ferðina út á sjó, nánar tiltekið um borð í varðskipinu Óðni. Kannaðir verða krókar og kimar skipsins en vistarverur þess eru sannkallað augnakonfekt. Punkturinn yfir i-ið er síðan kaffisamsæti í matsal skipsins. 

Við hittumst í anddyri Sjóminjasafnsins kl. 13:30.

Allar konur velkomnar og aðgangur er ókeypis.

Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna og er opinn öllum konum, íslenskar sem erlendar, sem hafa áhuga á að hittast, fara í listræn ævintýri með öðrum konum eða, eins á þessum degi, að fá innlit í eitthvað nýtt!

Söguhringur kvenna á facebook

Nánari upplýsingar veita:

Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri hjá Borgarbókasafninu 
Netfang: kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is 
Sími: 411 6122 / 618 1420

Íris Gyða Guðbjargardóttir, sérfræðingur hjá Borgarsögusafni 
Netfang:iris.gyda.gudbjargardottir@reykjavik.is 
Sími: 411 6355


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16