Söguhringur kvenna hefst á ný

Söguhringur kvenna hefst á ný
Söguhringur kvenna

Söguhringur kvenna hefst á ný


Kynningaruppákoma fyrir haustdagskrá á sunnudaginn

Sunnudaginn 2. september kl. 14:00-15:30 í Borgarbókasafninu, menningarhúsi Grófinni, verður sérstök kynningaruppákoma á Söguhringi kvenna þar sem hægt er að fræðast nánar um dagskrá haustsins. Allar konur eru velkomnar sem hafa áhuga á að kynnast starfseminni nánar og kynnast öðrum konum í skapandi umhverfi. Múltíkúltíkórinn — Fjölþjóðlegur sönghópur kvenna, mun gleðja gesti með því að syngja nokkur lög á mismunandi tungumálum undir stjórn Margrétar Pálsdóttur og verða léttar veitingar í boði. 

Í haust verður dagskráin einstaklega fjölbreytt og koma ýmsar listgreinar og tjáningarform við sögu. Meðal annars verður boðið upp á leshring, leiklistar- og spunasmiðjur og tónlistarsmiðjur svo allar konur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dagskrána í heild sinni má sjá hér á íslensku og hér á ensku. 

Söguhringur kvenna er vettvangur fyrir konur til að hittast, kynnast og tengjast. Hér notum við listræna sköpun til að segja frá reynsluheimi okkar auk þess sem boðið er upp á ýmis konar fræðslu um menninguna og samfélagið sem við búum í. Söguhringurinn hefur verið starfandi í 10 ár og öllum konum er velkomið að taka þátt hvenær sem er. 

Söguhringur kvenna er samvinnuverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og W.O.M.E.N., Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Dagskrá haustsins 2018 er styrkt af velferðarráðuneytinu.


Söguhringur kvenna er einnig á Facebook: https://www.facebook.com/soguhringur/
Sjá nánar um Söguhring kvenna á vefsíðunum www.borgarbokasafn.is og www.womeniniceland.is

Nánari upplýsingar veita


Shelagh Smith, Samtök kvenna af erlenum uppruna á Íslandi
shelagh@womeniniceland.is
s:6963041

Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafninu
kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
s:6181420


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16