Samvinna, samhljómur samtakamáttur.

Samvinna, samhljómur samtakamáttur.
Inga Dóra Pétursdóttir

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Hann markar upphaf hins árlega 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi. Í þetta sinn  viljum við hjá landsnefnd UN Women bjóða ykkur að koma og taka þátt í verki Ragnheiðar Hörpu, Skínöldu, þar sem við munum í krafti samvinnu, samhljóms og samtakamáttar mynda ljósaöldu og senda með henni jákvæða strauma út í heim.  Til að magna upplifun okkar og kraft munu kórar bæta hljómi við ferðalag ljóssins. Verkið verður myndað úr lofti og mun þannig lifa áfram á öldum ljósvakanna. Gjörningurinn tekur 10 mínútur og að honum loknum verður boðið upp á kakó og góða samveru.

Verkefni UN Women Öruggar borgir nær til 17 borga og þeirra á meðal er Reykjavík. Markmið verkefnisins er að skapa konum, unglingum og börnum öruggt líf án ótta við ofbeldi í almenningsrýmum og er það unnið í samstarfi við borgaryfirvöld og frjáls félagasamtök á hverjum stað. Leitast er eftir að auka öryggi, koma í veg fyrir og/eða draga úr ofbeldi, virkja og efla kvennasamtök og talsmenn barna og móta þannig öruggt og traust umhverfi fyrir alla. Borgir sem þegar hafa náð miklum árangri með verkefninu eru t.d Kaíró, Nýja Delí, Port Moresby og Kígalí.

Við getum ekki litið fram hjá því að kynbundið ofbeldi er hnattrænt vandamál. Konur í vestrænum löndum jafnt sem í löndum fjær okkur hafa flestar upplifað kynferðislega áreitni og þekkja óttann við að verða fyrir kynbundnu ofbeldi. Birtingarmyndir vandamálsins eru ólíkar milli landa og lausnirnar oft svæðisbundnar.

Í könnun sem UN Women stóð fyrir kom í ljós að 95% kvenna í Nýju Delí og 99,3% kvenna í Kaíró hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Það er mikið áhyggjuefni að í sömu könnun töldu 3 af hverjum 4 karlmönnum í Nýju Delí að konur bæru sjálfar ábyrgð á ofbeldinu ef þær væru einar á ferð í myrkri eða væru í tilteknum klæðnaði. Í Nýju Delí og Port Moresby hafa konur krafið borgaryfirvöld um að hafa sérstaka kvennastrætóa gangandi á álagstímum til að forðast áreiti karlmanna í troðnum vögnum. Einnig er átak í báðum borgum til að lýsa upp strætisvagnastöðvar, almenningsklósett og gönguleiðir sem og að breikka gangstéttir. Í Rio de Janeiro hefur verið búið til sérstakt snjallsímaforrit til að veita þolendum ofbeldis í fátækrahverfum upplýsingar um hvar næsta lögreglustöð, neyðarmóttaka og kvennaathvarf eru. Þetta eru dæmi um ódýrar og áhrifaríkar lausnir. 

Hugarfarsbreyting er þó mikilvægasta markmiðið í baráttu okkar fyrir samfélagi þar sem konur, unglingar og börn eru fullgildir og öruggir þátttakendur. Við hjá UN Women skorum á þig að sýna málstaðnum samstöðu í kvöld og verða hluti af ljósöldu gegn kynbundnu ofbeldi sem fer af stað frá Klambratúni kl 17.15!

Sjáumst í kvöld!

Höfundur Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16