Opinn eldur

Gjörningurinn “Opinn eldur” verður fluttur við útialtarið við Esjuberg á Kjalarnesi kl. 17 þann 10. desember n.k.

Í ár er haldið upp á það að 500 ár eru síðan Marteinn Lúther, sem kirkjudeild okkar er kennd við, hengdi upp 95 mótmæli til siðbótar á hurð hallarkirkjunnar í Wittenberg. Fyrir réttlætinu barðist Lúther og var bannfærður af páfa fyrir vikið.

Hinn 10. desember árið 1520 brenndi Lúther bannfæringarbréf páfa (Exurge Domine) ásamt nokkrum lagabókum rómversk-kaþólsku kirkjunnar og fleiri ritum sem hann taldi að stangaðist á við boðskap Biblíunnar. Eftir þennan atburð gaf páfi frá sér endanlega bannfæringarskipun eða hinn 3. janúar 1521. Á þeim stað er brennan fór fram í Wittenberg stendur nú Lúthers – eikin.

Mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna er einnig 10. desember og mun Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands flytja stutt ávarp við brennuna. Fulltrúar barna og unglinga, útlendinga, kvenna og fleiri hópa munu á táknrænan hátt brenna það óréttlæti sem fólk hefur orðið fyrir. Samveran “Opinn eldur” er gjörningur þar sem öllum er velkomið að brenna óréttlæti heimsins. Blöð og skriffæri verða á staðnum.

Nefnd um fimm alda minningu siðbótar býður til þessa gjörnings og er Sögufélagið Steini á Kjalarnesi samstarfsaðili ásamt sóknarpresti og sóknarnefnd Brautarholtssóknar. Sögufélagið Steini hefur haft veg og vanda að því að reisa útialtarið við Esjuberg.

Sóknarnefnd Brautarholtssóknar býður til aðventuhátíðar í Fólkvangi að lokinni brennu eða kl.18 og býður gestum upp á heitt kakó og léttar veitingar. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir flytur hátíðarræðu, sunnudagaskólabörnin syngja, Hulda Björnsdóttir leikur á píanó og Kirkjukór Reynivallaprestakalls syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar organista. Sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur leiðir bæn.



Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16