Í átt að frelsi? Staða flóttamannamála í Evrópu og á Íslandi

Í átt að frelsi? Staða flóttamannamála í Evrópu og á Íslandi
Í átt að frelsi?

*english below*

Mannréttindaskrifstofa Íslands, Íslandsdeild Amnesty International og Rauði krossinn á Íslandi standa að málþingi um stöðu flóttamannamála í Evrópu og á Íslandi, miðvikudaginn 15. mars næstkomandi, í Öskju í Háskóla Íslands, stofu 132, frá kl. 12.00 til 13.00.
Kanadíski lögfræðingurinn og rannsakandinn, Anna Shea er önnur tveggja framsögumanna á málþinginu en erindi hennar sem fram fer á ensku ber heitið, Europe´s Refugee Crisis: A Solution Looking for a Problem? Anna Shea starfar sem rannsakandi og ráðgjafi hjá aðalstöðvum Amnesty International í London. 
Hún er sérstakur gestur Íslandsdeildar Amnesty International. 
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi heldur erindi um stöðu flóttamannamála á Íslandi, hvað gengur vel og hvað má betur fara.
Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands leiðir málþingið.
Erindin fara fram á ensku.

Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir.
Facebook viðburðinn er að finna hér.

The Icelandic section of Amnesty International, The Icelandic Red Cross and The Icelandic Human Rights Center represent a joint forum on the situation of refugee issues in Europe and Iceland, Wednesday the 15th of March 2017, in Askja, room 132, from 12pm until 13pm. 
The Canadian lawyer and reasearcher Anna Shea is one of the two speakers at the forum. The title of her presentation is, Europe´s Refugee Crisis: A Solution Looking for a Problem? 
Anna Shea is a Canadian works as a researcher and an advisor with the Refugee and Migrant Rights Team at Amnesty International’s International Secretariat in London. She has done research on refugee issues in many countries, including Australia, Hong Kong, Indonesia and Turkey. Prior to her work in London, she was the Legal Program Coordinator at AI Canada.
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lawyer at The Icelandic Red Cross will give a speech on refugee issues in Iceland, what has worked well and what can be improved. 
Margrét Steinarsdóttir, the director of The Icelandic Human Rights Center will chair the forum.
Both presentations will be in English. 

The forum is open to everyone.
You can find the Facebook event here.

 

 

 

 

Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16