Flýtilyklar
Hvað hyggst þinn flokkur gera í málefnum innflytjenda?
Morgunfundur með frambjóðendum til Alþingis verður haldinn miðvikudaginn 12. október kl. 8.30 – 10.00 í Menningarhúsinu Gerðubergi.
Vinsamlega skráið þátttöku fyrirfram með tölvupósti á teymið@gmail.com.
Enginn aðgangseyrir og frítt kaffi. Meðlæti á vægu verði er í boði á kaffihúsinu.
Dagskrá:
Fundarstjórn og ávarp fyrir hönd Teymis um málefni innflytjenda: Hallfríður Þórarinsdóttir frá MIRRA.
Hver og einn frambjóðandi mun halda stutt erindi og svara eftirfarandi spurningum:
1. Hvað hyggst þinn flokkur gera varðandi félagsleg undirboð og skattaundanskot sem tengjast erlendum starfsmönnum á íslenskum vinnumarkaði? Hvaða verkefni eru brýnust í því samhengi og hvers vegna?
2. Hver er ábyrgð yfirvalda varðandi gagnkvæma aðlögun? Hvernig á að tryggja gagnkvæma aðlögun til langs tíma? Hvað er mikilvægast í því sambandi?
3. Hvert er hlutverk og ábyrgð stjórnmálaafla í samfélagslegri orðræðu um innflytjendur og vaxandi fjölbreytni í íslensku samfélagi?
Að erindi loknu verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Fundurinn er haldinn á vegum Teymis um málefni innflytjenda, sem er samráðsvettvangur stofnana ríkis og sveitarfélaga, fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka sem vinna að málefnum innflytjenda og hefur starfað síðan 1995.
Notum tækifærið til að koma málefnum innflytjenda og fjölbreytileikans á dagskrá komandi kosninga!
Slóð á facebook síðu viðburðarins er: https://www.facebook.com/events/682486718596073/