Fjölmenningargangan 2017 // Multicultural Parade 2017

(English version below)

Góðan daginn,

Fyrir hönd Reykjavíkurborgar viljum við bjóða ykkur að taka þátt í Fjölmenningargöngunni sem haldin verður þann 27. maí kl. 13:00. Æskilegt er þó að þátttakendur mæti á bilinu 12-12:30.

Fjölmenningargangan markar upphaf Fjölmenningardagsins. Hugmyndin að baki Fjölmenningardeginum er að fagna þeirri fjölbreyttu menningu sem borgarsamfélagið býður upp á. Dagurinn er skipulagður af Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í samstarfi við fjölmarga sjálfboðaliða úr fjölmenningarsamfélaginu.

Upphafsstaður göngunnar er við Hallgrímskirkju og mun gangan enda við Hörpuna. Nánari upplýsingar um Fjölmenningardaginn má finna á vefslóðinni: http://reykjavik.is/fjolmenningardagur

Hugmyndin er sú að fá fulltrúa frá hinum ýmsu hópum í skrúðgönguna og eru þátttakendur hvattir til að mæta með fána, borða eða annað sem auðkennir viðkomandi hóp. Þó er ekki nauðsynlegt að tilheyra ákveðnum hópi til þess að taka þátt í göngunni heldur eru allir velkomnir. Óskað er eftir því að þátttakendur láti vita hafi þeir sérstakar óskir; til dæmis ef ætlunin er að flytja tónlist í göngunni, dansa, nota farartæki og fleira. Einnig væri gott að fá upplýsingar um áætlaðan fjölda þátttakenda ef mögulegt er. Þetta er mikilvægt til þess að tónlistar- og dansatriði dreifist vel um alla gönguna.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 22. maí næstkomandi.Skráningareyðublað fyrir Fjölmenningargönguna er hér:

http://reykjavik.is/fjolmenningardagur2017-skraning

Varðandi frekari spurningar vegna Fjölmenningargöngunnar er hægt að hafa samband við verkefnastjóra Fjölmenningargöngunnar:

Tómas Ingi Adolfsson

Netfang: tomas.ingi.adolfsson@reykjavik.is

Sími: 411- 4158

_______________________________________________________________________________________

Hello everybody,

On behalf of The City of Reykjavík, we would like to invite you to participate in the Multicultural Parade that will take place on the 27th of May at 13:00. Participants are kindly asked to attend between 12 and 12:30.

Multicultural Day officially begins with the start of the Multicultural Parade. This day is dedicated to the celebration of cultural diversity in Reykjavík. Multicultural day is organized by Reykjavík´s human rights office along with many volunteers from the multicultural community.

The parade will start at Hallgrímskirkja and take end at Harpa. You can get more information about the event through this link:http://reykjavik.is/fjolmenningardagur

The idea is to bring together participants from various groups in the parade. Participants are encouraged to bring flags, emblems or banners as a representation of their group. It´s not necessary to take part in the parade as a part of a group and everyone is free to join the parade. Please specify if you have any special requests, e.g. regarding music, dance, drums, vehicles etc. If possible, an estimated number of participants would also be appreciated. This is important when considering placement of the dance and music acts in the parade.

Please let us know before the 22nd of May if you wish to participate.Here is a registration form for the Multicultural Parade:http://reykjavik.is/fjolmenningardagur2017-skraning

For further questions about the parade, you´re also welcome to contact the project manager of the Multicultural Parade:

Tómas Ingi Adolfsson

Email: tomas.ingi.adolfsson@reykjavik.is

Phone: 411- 4158


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16