Evrópusamvinna

Evrópusamvinna
Evrópusamvinna

Kynninga á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi.

Háskólatorgi, 6. nóvember 2014 kl. 15.00-17.00

Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa kynna styrki og samstarfsmöguleika. Kjörið tækifæri fyrir skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.

Evrópusamvinna.is

Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Vefnum er ætlað að vera fyrsti áfangastaður fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu.

Evrópusamstarf fyrir alla

Íslendingar hafa aðgang að fjölda samstarfsáætlana í gegnum EES samninginn og hafa verið mjög virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Einnig á Ísland aðild að norrænu samstarfi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. Hægt er að sækja styrki og stuðning til verkefna sem tengjast flestum sviðum þjóðlífsins og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar og lista, vísinda og nýsköpunar, heilbrigðis og almannavarna, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs.

Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.

Allir velkomnir!


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16