Au-pair lát­in vinna ýmis störf

Þingmenn Miðflokksins í Noregi hafa boðað lagafrumvarp í haust, sem leggi bann við því að fólk sé ráðið sem au-pair. Samningar kveða á um að au pair sinni heimilisstörfum og barnapössun, í mest fimm klukkustundir á dag. Oft sé fólk látið vinna miklu meira.

Í því samhengi var rætt við Margréti Steinarsdóttur, framkvæmdastjóra Mannréttindaskrifstofu Íslands, um au-pair á Íslandi.

Af vef mbl.is:

Al­gengt er að fólk sem kem­ur hingað til lands sem au-pair sé látið vinna í hinum ýmsu störf­um. „Þau mega auðvitað ekki vinna, hafa eng­in at­vinnu­leyfi. En svo hef­ur vist­fjöl­skyld­an tekið laun­in,“ sagði Mar­grét Stein­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands, í Spegl­in­um á RÚV.

„Ég hef fengið nokk­ur dæmi til mín. Ungt fólk sem hef­ur komið hingað sem au-pair en hef­ur verið látið vinna bæði í bygg­ing­ar­vinnu, vinna við ræst­ing­ar, bera út blöð og alls kon­ar.“

Í há­deg­is­frétt­um RÚV í dag sagði Guðmund­ur Bald­vins­son, lög­reglumaður á Suður­nesj­um, erfitt að sjá nokkuð mis­jafnt þegar fólk komi til lands­ins. Við eft­ir­lit í flug­stöðinni sér fyrst og fremst horft til þess hvort ein­hverj­ir fylgd­ar­menn séu með fólki eða aðrar vís­bend­ing­ar um man­sal. En varðandi fólk sem komi hingað sem au-pair, komi mis­notk­un fyrst i ljós seinna.

Frétt RÚV um málið.


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16