Áskorun Mannréttindaskrifstofu Íslands til dómsmálaráðherra um að fullgilda valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Áskorun Mannréttindaskrifstofu Íslands til dómsmálaráðherra um að fullgilda valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Þann 20. september 2016 samþykkti Alþingi þingsályktun um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) ásamt því að álykta að valkvæð bókun við samninginn skyldi einnig fullgilt fyrir árslok 2017.

Nú er liðið vel á þriðja ár án þess að bókunin hafi verið fullgilt. Við svo búið má ekki standa og skoraði Mannréttindaskrifstofa Íslands á dómsmálaráðherra að afla fulltingis ríkisstjórnarinnar og fullgilda bókunina. Áskorunina má lesa hér.


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16