Flýtilyklar
Alþjóðlegi Mannréttindadagurinn 10.desember 2014
Í dag, 10.desember, er alþjóðlegi Mannréttindadagurinn sem haldinn hefur verið í heiðri frá því að Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna samþykkti Mannréttindayfirlísinguna þann 10.desember árið 1948. Frekari upplýsingar um Mannréttindayfirlýsinguna er að finna hér: https://www.unric.org/is/upplysingar-um-st/36
Þema dagsins í ár er Mannréttindi 365 (#rights365) og er jafnframt áminning um grundvallarsjónarmið Mannréttindayfirlýsingarinnar, að allir alls staðar, alltaf eigi rétt á að njóta mannréttinda til fullnustu. http://www.un.org/en/events/humanrightsday/index.shtml
„Mannréttindayfirlýsingin er jafn öflug og raun ber vitni vegna þess að hún er holdgerfing þess að hugmyndir geta breytt heiminum. Hún felur í sér að mannréttindi eru óskiptanleg kjölfesta 365 daga ársins. Allir dagar eru mannréttindagar, dagar sem við verjum í því skyni að tryggja að allar manneskjur geti öðlast jafnrétti, reisn og frelis,“ segir Zeid Ra’ad Al Hussein, Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, hvetur ríki heims í dag til þess að fullnægja þeirri skyldu að vernda mannréttindi á hverjum einasta degi og hvetur jafnframt fólk til þess að krefja ríkisstjórnir reikningsskila.
Gangið til liðs við okkur og látið rödd ykkar heyrast á vettvangi embættis Manréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna hér. https://vine.co/UNrightswire