Alþjóðleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs

Vekjum athygli á alþjóðlegri friðarráðstefnu Höfða friðarseturs þann 10. október nk. í Veröld – húsi Vigdísar. 

Aðaláherslan er á stöðu flóttafólks í heiminum í dag. Lögð verður áhersla á mikilvægt hlutverk ungs flóttafólks, frumkvöðla og aðgerðarsinna í að stuðla að jákvæðum breytingum. Það væri því frábært að sjá sem flesta á ráðstefnunni sem láta sig þessi málefni varða og ekki síst fulltrúa úr ungliðahreyfingum.  Meðal fyrirlesara eru JJ Bola, Sophia Mahfooz, Adam Elsod, Harald Quintus-Bosz, Kathy Gong og Nazanin Askari - sjáhttps://www.fridarsetur.is/is/projects/10-10-imagine-forum/

Að auki verða teymin sem munu taka þátt í Snjallræði í ár kynnt með formlegum hætti á ráðstefnunni.

Í viðhengi er að finna frekara kynningarefni fyrir ráðstefnuna  sem þið mættuð gjarnan dreifa og vekja athygli á. Ráðstefnan er öllum opin og ekkert þátttökugjald en við biðjum fólk um að skrá sig hér: https://goo.gl/forms/w7QvD4TypO4RlXNC3. Hér er einnig hlekkur á Facebook-viðburðinn: https://www.facebook.com/events/233375564006154/


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16