Flýtilyklar
„Að deyja með reisn – líknardauði”
Siðmennt boðar til málþings um líknardauða fimmtudaginn 29. janúar næstkomandi kl. 17:00 til 18:30 á Hótel Sögu. Markmiðið er að fjalla um þetta viðkvæma málefni út frá sjónarhóli heimspekinnar og út frá upplifun aðstandenda. Yfirskrift málþingsins er: „Að deyja með reisn – líknardauði”.
Aðgangur er heimill öllum og er ókeypis.
Frekari upplýsingar má finna á facebooksíðu viðburðarins eða á heimasíðu Siðmenntar.