Komdu og njóttu fjölbreytninnar með okkur í Smáralind í Kópavogi, á Glerártorgi á Akureyri og í Neista á Ísafirði!
10. desember 2009
Í tilefni af lokadegi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og degi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna verður flutt
Hátíðardagskrá kl. 16:15 í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri
Erindi flytja:
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu – Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 30 ára
Sigrún Stefánsdóttir, formaður félagsmálaráðs – Aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar gegn ofbeldi
Þórdís Elva Þorsteinsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar „Á mannamáli“
Nemandi í Menntaskólanum á Akureyri
Tónlistaratriði
Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson
Samstaða á Ráðhústorgi
Ljósaganga niður að Ráðshústorgi kl. 17:00, nemendur úr MA leiða gönguna
Þátttakendur í göngunni mynda handaband á Ráðshústorgi
Tónlist
Snorri Guðvarðsson
Enda þótt staða íslenskra kvenna sé sterk á mörgum sviðum þá er kynbundið ofbeldi alvarlegt vandamál hér á landi. Árið 2008 leituðu 547 einstaklingar til Stígamóta en frá upphafi samtakanna til ársloka 2008 hafa alls 5.279 manns leitað þar aðstoðar. 22 % íslenskra kvenna hafa einhvern tíma á ævinni verið beittar ofbeldi af maka eða fyrrverandi maka en 530 konur hafa leitað til Kvennaathvarfs á árinu 2009. – Árið 2008 voru 285 einstaklingsviðtöl hjá Aflinu á Akureyri og hafði fjölgað um 94% frá fyrra ári. 1. október 2009 voru viðtölin orðin jafn mörg og allt árið í fyrra.
Jafnréttisstofa, Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Aflið, Zontaklúbbarnir á Akureyri, Soroptimistar, Norðurlandsdeild Fíh, UNIFEM á Íslandi
25. nóvember sl. markaði upphaf 16 DAGA ÁTKAKS GEGN KYNBUNDNU OFBELDI, en sami dagur er jafnframt alþjóðadagur Sameinuðu þjóðanna um afnám ofbeldis gegn konum. Af því tilefni var farið í Ljósagöngu frá Þjóðmenningarhúsinu að Sólfarinu við Sæbraut.
Gengið var undir yfirskrift 16 daga átaksins þetta árið, sem er: Leggðu þitt af mörkum. Farðu fram á aðgerðir: Saman getum við bundið enda á ofbeldi gegn konum! Í farabroddi göngunnar voru kyndilberar sem láta sig málefnið varða, þar á meðal Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, Jón Páll Eyjólfsson, leikskáld og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann, höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi á mannamáli.
Í lok göngunnar safnaðist göngufólk við Sólfarið og horfði í átt að Viðey, en að sérstakri beiðni gönguskipuleggjenda hafði verið slökkt á Friðarsúlu Yoko Ono frá byrjun göngunnar í þeim tilgangi að vekja á táknrænan hátt athygli á kynbundnu ofbeldi gegn konum. Eftir nokkurrar mínútna þögn var síðan tendrað á Friðarsúlunni, og þar með á táknrænan hátt varpað ljósi á vandann sem að okkur steðjar. Þegar búið var að lýsa upp með súlunni sungu Þrjár raddir og Beatur snilldarlega raddað lag um frið á jörð, göngufólki til mikillar ánægju.
Magnea Marinósdóttir, varaformaður UNIFEM, þakkaði hópnum fyrir þátttökuna og kvaddi með þeim orðum að við myndum hittast aftur í Ljósagöngu að ári en bætti svo við eftir smá hik að við myndum a.m.k. gera það ef kynbundið ofbeldi gegn konum yrði enn vandamál (!) Vakti það okkur til umhugsunar um þá miklu vinnu sem framundan er og einnig að allt er gerlegt þegar allir leggja hönd á plóg.
Ljósagangan tókst með eindæmum vel og áttu allir fallega stund saman. Veður var að mestu stillt og gott, sem kom sér vel þar sem göngufólk var með kyndla og stjörnuljós, en í allt tóku um 120 konur og menn þátt þetta kvöld.
Kynbundið ofbeldi gegn konum og stúlkum er útbreiddasta ofbeldi á heimsvísu og því er mikilvægt að allir leggist á eitt við að uppræta það.Við viljum þakka öllum þeim sem mættu fyrir stuðning þeirra við þetta mikilvæga málefni.
Lesa meiraSkráning nauðsynlega á hlekknum: www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/sjaldbodasamtok.
Fyrirlesturinn er haldin í tilefni útgáfu bókarinnar Stjórnun og rekstur félagasamtaka. Höfundar eru alls um 30, en ritstjórar voru þau dr. Ómar H. Kristmundsson, dósent í stjórnmálafræði, og dr. Steinunn Hrafnsdóttir, dósent í félagsráðgjöf. Bókin verður seld á tilboðsverði eftir fyrirlesturinn.
Efni fyrirlestrar Helmut K. Anheiser: " The nonprofit or third sector has become more important in a number of policy fields and dialogues, including welfare state reform, governance and accountability, and the future of community and social cohesion in increasingly diverse and institutionally fragile societies. What is the political and economic background of these development, and to what extent can nonprofits "deliver"? And how can they respond to the current economic crisis?"
Lesa meiraMálstofan er á vegum European Women´s Lobby og Stígamóta.
Dagskrá:
Félags- og jafnréttismálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir opnar fundinn
Colette De Troy
Director of European Policy Action Centre on Violence against Women
The European Observatory: role and challenges of women’s NGOs on VAW
Karin Helweg-Larsen
Medical doctor, senior researcher Danish National Institute of Public Health, member of Advisory Board of European Policy Action Centre on VAW
The Danish observatory on Violence against women: Goals and achievements
Media watch and reliable data on VAW : How to promote public interest in prevention of VAW - and also advance reliable data collection
Rada Boric
From Forgotten Gendered War Violence to Trafficking for Sexual Exploitation
Milena Kadieva
lawyer
"Challenges and opportunities in litigating cases of Violence against women - the Bulgarian experience".
Starfskonur Stígamóta afhenda viðurkenningar fyrir frábært starf í baráttunni við kynbundið ofbeldi
Fundarstýra Guðrún Jónsdóttir
talskona Stígamóta
Undanfarin ár hefur Mannréttindaskrifstofa Íslands fengið fjármagn frá hinu opinbera, átta milljónir árlega, beint af fjárlögum; Alþingi hefur úthlutað MRSÍ sérstöku fjármagni, fjórum milljónum í gegnum utanríkisráðuneyti og fjórum milljónum í gegnum dómsmálaráðuneyti.
Síðasta haust vara þetta framlag til skrifstofunnar fellt niður og þess í stað veitti Alþingi styrk til mannréttindamála almennt.
7. október 2005
Ársfundur Starfsgreinasambandsins sem haldinn var á Akureyrir 6 og 7. október ályktaði í dag um Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Ályktunin fer hér á eftir:
Mannréttindi fjalla um að það frelsi, að allir geti valið sér leiðir í lífinu án þess að vera hindraðir af félagslegri stöðu, uppruna, efnahag eða kynferði. Mannréttindaskrifstofa Íslands gegnir því hlutverki, m.a. gagnvart Sameinuðu þjóðunum, að fylgjast með stöðu mannréttindamála á Íslandi.
Ríkisstjórn Íslands ákvað á þessu ári að skera verulaga niður fjárframlög til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Verkalýðshreyfingin getur ekki látið slíkt óátalið. Hugsjónir verkalýðshreyfingarinnar og mannréttindi fara saman. Meðal mikilvægra mannréttinda sem verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir er rétturinn til starfsemi verkalýðsfélaga, rétturinn til almannatrygginga, rétturinn til viðunandi lífskjara og rétturinn til vinnu.Enda þótt þessi mannréttindi séu að nokkru tryggð, þá heldur baráttan áfram fyrir að gera réttindi þessi skýrari og skilgreina hver séu lágmarksréttindi í hverju tilviki.
Starfsgreinasamband Íslands taldi sér skylt að beita sér sértaklega fyrir því að verkalýðshreyfingin studdi með fjárframlögum hið mikilvæga starf Mannréttindaskrifstofunnar, til að tryggja rekstaröryggi hennar á þessu ári. Öll heildarsamtök launafólks á Íslandi og Félag eldri borgara lögðu fé að mörkum og komu þar með í veg fyrir að starfsemi félli niður á þessu ári. SGS skorar Alþingi og ríkisstjórn að tryggja til frambúðar rekstur skrifstofunnar, eins og álit Sameinuðu þjóðanna um þá starfsemi, gerir ráð fyrir.