Fréttir

Mannréttindaskrifstofan flytur

2.9.2010

Mánaðamótin ágúst-september hafa farið í flutninga skrifstofunnar úr húsnæðinu við Hafnarstræti að Túngötu 14, 101 Reykjavík, en þar verður mun rýmra um skrifstofuna í björtu og fallegu húsnæði Kvenréttindafélags Íslands, Hallveigarstöðum.

Mannréttindaskrifstofan verður þar á fyrstu hæð, gengið inn til vinstri við hringstigann sem liggur upp á aðra hæð.

Skrifstofan er enn að bíða eftir sím- og nettengingu, og því verður e.t.v. erfitt að ná í starfsfólkið. Biðjumst við velvirðingar á því, og vonum að  við verðum tengd umheiminum í síðasta lagi eftir fyrstu helgina í september. Þér er velkomið að koma við á skrifstofunni á nýja staðnum ef þú þarft að ná tali á okkur.




Smellið hér til að sjá mynd af Hallveigarstöðum og leiðbeiningar um hvernig á að komast þangað.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica