Fréttir

RAGNARSBÓK - fræðirit um mannréttindi til heiðurs Ragnari Aðalsteinssyni, hæstaréttarlögmanni

Athöfn vegna útgáfu Ragnarsbókar í Þjóðmenningarhúsinu 2. júlí s.l.

26.7.2010

Ragnarsbók afhending 2Mannréttindaskrifstofa Íslands og Hið íslenska bókmenntafélag, í samvinnu við Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík, gáfu á dögunum út Ragnarsbók, fræðirit til heiðurs Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni. Í tilefni af útgáfu bókarinnar var móttaka haldin í Þjóðmenningarhúsinu, föstudaginn 2. júlí s.l., þar sem Ragnari var afhent eintak af bókinni.

Ragnarsbók afhending 1Nokkrir höfunda bókarinnar og fjöldi annarra boðsgesta voru viðstaddir athöfnina. Oddný Mjöll Arnardóttir, formaður stjórnar Mannréttindaskrifstofu Ísland og prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, ávarpaði gesti og afhenti Ragnari bókina. Að því loknu hlýddu gestir á ávarp Ragnars og var síðan öllum boðið að glugga í ritið, sem er einkar veglegt.

Myndir af afhendingu ritsins má sjá á myndasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands: http://picasaweb.google.com/mannrettindaskrifstofaislands/Ragnarsbok

Ragnarsbók inniheldur ritgerðir á sviðum tengdum þjóðarétti, mannréttindum og réttarríkinu eftir valinkunna innlenda og erlenda fræðimenn. Hluti greinanna byggir á erindum sem flutt voru á Ragnarsstefnu sem Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri stóð fyrir í tilefni afmælis Ragnars árið 2006. Ritið er um 300 bls., vandað og veglegt í alla staði.

Ritið er hægt að nálgast hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi, s: 588-9060.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica