Vel heppnaður alþjóðadagur flóttamanna á Ingólfstorgi
Sunnudaginn 20. júní s.l., á alþjóðadegi flóttamanna, héldu Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði kross Íslands og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hátíð á Ingólfstorgi í Reykjavík með það fyrir augum að vekja athygli á stöðu flóttafólks í heiminum almennt, og á Íslandi.
Hátíðin var skipulög í samstarfi við hælisleitendur og flóttafólk, og var boðið upp á veitingar, tónlist, dans og kaffi. Veitingarnar, sem voru frá ýmsum löndum, voru afar ljúffengar, og var örtröð í tjaldinu þar sem listakokkarnir skömmtuðu mat frá m.a. Afganistan, Kólumbíu og Indlandi.
Á alþjóðadegi flóttamanna eru skipulagðir viðburðir um allan heim, með mismunandi yfirskrift ár frá ári. Heimili var yfirskrift alþjóðadags flóttamanna 2010. Áherslan var á raunir þeirra ríflega 40 milljóna karla, kvenna og barna sem neyðst hafa til að yfirgefa heimili sín vegna átaka, ofbeldis eða annarra aðstæðna.
Hér á Íslandi var leitast við að vekja almenning til umhugsunar um vanda flóttafólks en einnig mannauð. Fólki hættir til að líta á flóttafólk einungis sem fórnarlömb sem þarfnast hjálpar en það vill gleymast að það tekur einnig virkan þátt í byggja hér betra samfélag og hefur auðgað íslenska menningu og mannlíf.
Við viljum þakka þeim sem hjálpuðu til við að gera þennan viðburð eftirminnilegan – bæði sjálfboðaliðum sem og gestum og gangandi.
Fleiri myndir af alþjóðadegi flóttamanna 2010 má finna á myndasíðu Mannréttindaskrifstofunnar.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project