HORFIN LÍFSGLEÐI – OKKAR ÁBYRGÐ
Verndum börn gegn ofbeldi
Málþing Barnaheilla – Save the Children á Íslandi verður haldið 26. maí næstkomandi á Hilton-Nordica hóteli frá kl. 9.00-12.30.
Öll börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi og vanrækslu. Á málþinginu verður fjallað um birtingarmyndir ofbeldis gegn börnum víða um heim
og mögulegar leiðir til að stöðva það.
Dagskrá:
- Helgi Ágústsson, formaður stjórnar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi,
býður gesti velkomna
- Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari
Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, setur málþingið
- Jasmine Whitbread, framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka Barnaheilla - Save the Children: Violence towards children globally - what need to be done.
- Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi:
Okkar ábyrgð - hvað getum við gert til að stöðva ofbeldi gegn börnum?
- Kaffihlé
- S. Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla: Vinátta - virðing- Jafnrétti í Hagaskóla.
- Fulltrúar ungmennaráðs Barnaheilla - Save the Children á Íslandi: Einelti í skólum.
- Þorbjörg Sveinsdóttir, sérfræðingur í Barnahúsi: Að hlusta á börn og unglinga.
- Halldór Hauksson, sviðsstjóri Barnaverndarstofu: Úrræði á vegum Barnaverndarstofu.
Fundarstjóri: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Ókeypis aðgangur. Vinsamlega tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á barnaheill@barnaheill.is
|