Fréttir

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun.

17.5.2010

Efni: Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, 138. löggjafarþing 2009-2010, þskj. 861 – 495. mál.

Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Með frumvarpinu er lagt til að núgildandi lögum verði breytt á þann hátt að einhleypum konum, sem búa við skerta frjósemi, verði heimilt að nota bæði gjafaegg og gjafasæði við glasafrjóvgun. Það sama gildi um gagnkynhneigð og samkynhneigð pör, ef frjósemi beggja aðila er skert.

Mannréttindaskrifstofan hefur farið yfir ofangreint lagafrumvarp með hliðsjón af mannréttindaákvæðum Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 sem og fleiri mannréttindaskuldbindingum sem Ísland hefur gengist undir.

Ákvæði um jafnræðisreglu er að finna í 65. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir í 1. mgr.: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Réttur til jafnræðis og bann við mismunun eru grundvallarhugtök í alþjóðlegum mannréttindalögum. Þess vegna er mikilvægt að allir njóti sömu réttinda, einnig þegar kemur að tæknifrjóvgunum.

Mannréttindaskrifstofan telur frumvarpið stuðla að auknu jafnræði á meðal einstaklinga sem búa við skerta frjósemi. Hingað til hefur einhleypum konum verið heimilt að gangast undir tæknifrjóvgun með gjafasæði. Hins vegar hefur einhleypum konum, sem sjálfar hafa átt við skerta frjósemi að stríða, ekki verið heimilt að fá gjafaegg til viðbótar við gjafasæði. Þar af leiðandi hefur þeim síðarnefndu verið mismunað þegar kemur að möguleikum á tæknifrjóvgun.

Mannréttindaskrifstofan fagnar hinu framlagða frumvarpi og vonast til að það nái fram að ganga.

 

Virðingarfyllst,

 

f.h. Mannréttindaskrifstofu Íslands

 

_________________________________

Kolbrún Birna Árdal, lögfræðingur

 

Frumvarpið má sjá hér.

Umsögnin á pdf: Umsogn_Mannrettindaskrifstofu_Islands_um_495._mal_-_taknifrjovgun

 
 


Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica