Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um lagaskrifstofu Alþingis.
Efni: Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um frumvarp til laga um lagaskrifstofu Alþingis, 138. löggjafarþing 2009-2010, þskj. 787 – 457. mál.
Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint frumvarp til laga um lagaskrifstofu Alþingis. Í 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að stofna skuli lagaskrifstofu Alþingis sem „hafi það hlutverk að samræma reglur um samningu lagafrumvarpa og annan undirbúning löggjafarmála.“
Mannréttindaskrifstofan gerir ekki sérstakar athugasemdir við hið framlagða frumvarp. Hún vill þó koma því á framfæri að hún fagnar tillögum frumvarpsins og telur að ákvæði þess muni stuðla að aukinni mannréttindavernd við gerð lagafrumvarpa. Það hlýtur að teljast til réttarbóta að sérstök skrifstofa hafi það hlutverk að fara yfir stjórnarfrumvörp og kanna hvort þau samræmist mannréttindaákvæðum Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sem og öðrum þjóðréttarlegum skuldbindingum sem Ísland hefur gengist undir á sviði mannréttinda. Mannréttindaskrifstofan leggur þó til að skýrar verði kveðið á um hlutverk lagaskrifstofu og að sérstaklega verði tekið fram að hlutverk hennar sé að gæta að því að frumvörp uppfylli ákvæði laga um mannréttindavernd.
Mannréttindaskrifstofan lýsir ánægju sinni með frumvarpið, með fyrrgreindum athugasemdum, og telur að það geti stuðlað að vandaðri löggjöf.
Virðingarfyllst,
f.h. Mannréttindaskrifstofu Íslands
_______________________________
Kolbrún Birna Árdal, lögfræðingur
Frumvarpið má nálgast hér.
Umsögnin á pdf: Umsogn_Mannrettindaskrifstofu_Islands_um_457._mal_-_stofnun_lagaskrifstofu_Altingis


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project