Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands.
Efni: Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um frumvarp til laga um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands, 138. löggjafarþing 2009-2010, þskj. 895 – 508. mál.
Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint frumvarp til laga um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands. Í 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um að Þjóðskrá og Fasteignaskrá skuli sameinast í eina ríkisstofnun er skuli nefnast Þjóðskrá Íslands.
Mannréttindaskrifstofan gerir ekki sérstakar athugasemdir við hið framlagða frumvarp, enda telur hún fullvíst að við alla meðferð persónuupplýsinga hinna sameinuðu skráa verði tekið mið af lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000, með síðari breytingum.
Virðingarfyllst,
f.h. Mannréttindaskrifstofu Íslands
__________________________________
Kolbrún Birna Árdal, lögfræðingur
Frumvarpið má sjá hér.
Umsögnin á pdf: Umsogn_Mannrettindaskrifstofu_Islands_um_508._mal


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project