Fréttir

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum.

17.5.2010

Efni: Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, o.fl. (fækkun lögregluumdæma o.fl.), 138. löggjafarþing 2009-2010, þskj. 977 – 586. mál.

Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996, o.fl. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir stækkun lögregluumdæma í landinu sem síðan lúti stjórn eins lögreglustjóra.

Mannréttindaskrifstofan hefur farið yfir ofangreint lagafrumvarp með hliðsjón af mannréttindaákvæðum Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og alþjóðasamnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, sem fullgiltur var af Íslands hálfu, með tilteknum fyrirvörum, hinn 22. ágúst 1979.

Mannréttindaskrifstofan gerir ekki sérstakar athugasemdir við hið framlagða frumvarp, enda telur hún fullvíst að gætt verði að því að fækkun lögregluumdæma komi ekki niður á öryggi borgaranna sem ávallt skal haft í fyrirrúmi.

 

 

Virðingarfyllst,

 

f.h. Mannréttindaskrifstofu Íslands

 

___________________________________

Kolbrún Birna Árdal, lögfræðingur

 

Frumvarpið má nálgast hér.

Umsögnin á pdf: Umsogn_Mannrettindaskrifstofu_Islands_um_586._mal_-_fakkun_logregluumdama

 
 


Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica