Fréttir

Hvar þrengir að? Málefnaþing um skýrslu Rauða krossins.

12.5.2010

Niðurstaða könnunar Rauða krossins á því hverjir standa verst í íslensku þjóðfélagi verður birt og tekin til umfjöllunar á málefnaþingi í Háskóla Íslands, Háskólatorgi föstudaginn 14. maí klukkan 14-17.

Á málefnaþinginu „Hvar þrengir að?“ munu ungir atvinnuleitendur segja frá reynslu sinni, niðurstöður skýrslunnar verða kynntar, sem og viðbrögð fagaðila við henni. Þá verður rætt um fátækt á Íslandi. Sérstakur gestur verður Georg Habsburg formaður Rauða krossins í Ungverjalandi sem mun ræða um áhrif efnahagskreppunnar í Evrópu og viðbrögð Rauða krossins við afleiðingum hennar.

Rauði krossinn hvetur alla sem áhuga hafa til að sækja málefnaþingið. Þátttökugjald er ekkert en fólk beðið að skrá sig í tölvupósti á skraning@redcross.is. Nánari dagskrá hér.

Þetta er í fjórða sinn sem slík könnun hefur verið unnin af Rauða krossinum á síðustu 16 árum. Markmiðið er að finna þá hópa sem búa við verstu kjörin í íslensku þjóðfélagi svo hægt sé að skilgreina hvar þörfin fyrir aðstoð er mest og vakið athygli almennings og stjórnvalda á aðstæðum þeirra verst stöddu.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica