Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur skilað umsögn um tillögu til þingsályktunar um notendastýrða persónulega aðstoð við fólk með fötlun
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um tillögu til þingsályktunar um notendastýrða persónulega aðstoð við fólk með fötlun, 138. löggjafarþing 2009-2010, þingskjal 641 – 354. mál.
Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur borist til umsagnar framangreind tillaga til þingsályktunar um notendastýrða persónulega aðstoð við fólk með fötlun. Í þingsályktunartillögunni er lagt til að félags- og tryggingamálaráðherra komi á fót slíkri aðstoð við fatlað fólk á Íslandi með það að „markmiði að fatlað fólk geti almennt notið sjálfstæðis í lífi sínu til jafns við ófatlað fólk“. Einnig er því komið á framfæri að „ráðherra leggi fram tillögu að útfærslu á þjónustunni ásamt frumvarpi til nauðsynlegra lagabreytinga á haustþingi 2010“.
Í greinargerð með frumvarpinu er notendastýrð persónuleg aðstoð við fólk með fötlun skilgreind nánar. Í henni felst að fötluðum einstaklingum er veittur réttur til sjálfstæðis með því að gefa þeim, sem þurfa á varanlegri aðstoð að halda, kost á að stjórna lífi sínu sjálfir jafnvel þó þeir hafi þörf fyrir aðstoð annarra. Fatlaðir einstaklingar eiga þannig að hafa rétt á að ráða sér aðstoðarfólk sjálft sem hjálpar viðkomandi í þeirra daglega lífi. Slík þjónusta gefur fötluðum einstaklingum því tækifæri til að meta og stjórna þörf fyrir þjónustuna sjálfir. Þetta veitir þeim meira sjálfstæði og frekari kost á að taka mikilvægar ákvarðanir sjálfir. Hugmyndafræðin á bak við slíka notendastýrða persónulega aðstoð við fólk með fötlun á sér nokkurra ára sögu á hinum Norðurlöndunum en er aðeins byrjað að ryðja sér til rúms hérlendis.
Líkt og fram kemur í greinargerðinni með frumvarpinu byggir hugmyndafræðin um notendastýrða persónulega aðstoð við fólk með fötlun að miklu leyti á 19. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, frá 13. desember 2006. Þar er kveðið á um að „ríkin, sem eru aðilar að samningi þessum, viðurkenna jafnan rétt alls fatlaðs fólks til að lifa í samfélaginu og rétt þess til að eiga valkosti til jafns við aðra og skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk megi njóta þessa réttar til fulls og stuðla að fullri þátttöku þess í samfélaginu án aðgreiningar ...“ Samningurinn var undirritaður af Íslands hálfu þann 30. mars 2007 en enn sem komið er hefur hann ekki verið fullgiltur hér á landi. Mannréttindaskrifstofan vill nota tækifærið og hvetja ríkisstjórnina til að fullgilda þennan mikilvæga samning svo að réttindi þessa hóps verði að fullu tryggð. Líkt og greinargerð þingsályktunartillögunnar ber með sér er nú þegar farið að vitna til ákvæða þessa samnings og því virðist fátt því til fyrirstöðu að hann verði fullgiltur.
Mannréttindaskrifstofan lýsir ánægju sinni með fyrirliggjandi þingsályktunartillögu um notendastýrða persónulega aðstoð við fólk með fötlun. Markmið þingsályktunartillögunnar er að gefa fötluðum einstaklingum færi á að lifa sjálfstæðu lífi og að ráða sjálfir yfir jafn mikilvægum hlutum eins og persónuleg þjónusta er. Af öllu framangreindu virtu telur Mannréttindaskrifstofan þingsályktunartillöguna til þess fallna að vernda mannréttindi fólks með fötlun þar sem sjálfsákvörðunarréttur þess er hafður í fyrirrúmi. Skrifstofan telur hana því mikilvægt skref í átt að réttarbótum til handa fólki með fötlun.
Virðingarfyllst,
f.h. Mannréttindaskrifstofu Íslands
________________________________________________
Kolbrún Birna Árdal
lögfræðingur
Frumvarpið má finna hér.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project