Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur skilað umsögn um breyting á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof.
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um breyting á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, þskj. 181-163. mál.
Mannréttindaskrifstofu Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint frumvarp um breyting á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000. Efni frumvarpsins tekur til réttar einstæðra mæðra sem ala barn sem getið er við tæknifrjóvgun og einhleypra sem ættleitt hafa barn eða tekið barn í varanlegt fóstur, til 9 mánaða fæðingarorlofs og fæðingarstyrks. Frumvarpið tekur ekki til tilvika þar sem barnið nýtur aðeins samvista við annað foreldra sinna á fyrstu 18 mánuðum lífs síns þó lagalega séu tveir foreldrar til staðar. Hins vegar er því beint til félagsmálanefndar Alþingis að nefndin taki þá hlið mála sérstaklega til athugunar í framhaldinu, því skoða þurfi hvernig væri unnt að taka á slíkum undantekningartilfellum svo ætíð sé tryggður óskoraður réttur allra barna til samveru við báða foreldra sína, þ.e. þeirra barna sem lagalega eiga tvo foreldra, sem og réttur allra barna til alls níu mánaða samveru við foreldri á fyrstu 18 mánuðum lífsins.
Mannréttindaskrifstofa Íslands styður frumvarp þetta heils hugar. Rannsóknir seinni ára gefa til kynna að fyrstu 18 til 36 mánuðir barnsins séu mjög mikilvægir fyrir myndun tengsla þess við foreldri og barnið myndi sín bestu tengsl á þessum tíma. Því er mikilvægt að barn fái notið sem mestra samvista við foreldri á þessu tímabili. Jafnframt má sjálfsagt telja að veita börnum jafnan rétt, þ.e. að börn einstæðra mæðra sem getin eru við tæknifrjóvgun og einhleypra sem ættleitt hafa barn eða tekið barn í fóstur, fái notið sama samvistartíma og börn sem njóta beggja foreldra, sem skipta milli sín fæðingar- og foreldraorlofi.
Eins og áður segir, tekur frumvarpið ekki til tilvika þar sem barn nýtur aðeins samvista við annað foreldra sinna á fyrstu mánuðum ævi sinnar þó lagalega séu tveir foreldrar til staðar. Mannréttindaskrifstofa Íslands tekur undir tillögu flutningsmanna frumvarpsins að félagsmálanefnd Alþingis taki málið til sérstakrar athugunar og hvetur til þess, jafnframt því að frumvarp þetta verði lögleitt, að sem fyrst verði skoðað hvernig tryggja megi börnum í slíkri stöðu jafnan rétt á við önnur börn. Minnt er á að við slíka athugun skulu hagsmunir barnsins fyrst og fremst hafðir í huga og þess skyldi því gætt að binda veitingu viðbótarorlofs í umræddum tilvikum ekki svo ströngum skilyrðum að fá börn fái notið. Fremur ætti að viðhafa jákvæðar aðgerðir til að leitast við að tryggja barninu samvistir við báða foreldra og ekki að gera strangar kröfur til sönnunar því að barnið fái aðeins notið samvista við annað foreldrið þó bæði séu lagalega til staðar og annað geti ekki eða vilji ekki njóta samvista við barnið eða annast það.
Virðingarfyllst,
f.h. Mannréttindaskrifstofu Íslands
Margrét Steinarsdóttir
framkvæmdastjóri
Frumvarpið má finna hér.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project