Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti í kringum alþjóðadag gegn kynþáttamisrétti, 21.mars.
Nú stendur yfir Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti sem hverfist um alþjóðadag gegn kynþáttamisrétti, 21.mars.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi daginn í minningu 69 mótmælenda sem myrtir voru 21. mars 1960 er þeir mótmæltu aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku.
Evrópuvikan miðar að því að uppræta mismunun, fordóma og þjóðernishyggju í álfunni og stuðla þannig að umburðarlyndu Evrópusamfélagi þar sem allir eru jafnir, óháð útliti og uppruna.
Birtingarmyndir kynþáttamisréttis eru ólíkar eftir löndum og menningarsvæðum en kynþáttamisrétti nær yfir vítt svið - allt frá fordómum til ofbeldisverka. Kynþáttamisrétti á Íslandi birtist helst í útlendingafælni og duldum fordómum gagnvart fólki af erlendum uppruna. Fordómarnir birtast einkum í hversdagslífinu - þegar talað er niður til þeirra sem ekki eru skilgreindir sem ,,hreinir” Íslendingar; fólki er meinaður aðgangur að skemmtunum, það fær lakari þjónustu og atvinnu, er tortryggt og þarf jafnvel að þola að stjakað sé við því og hreytt í það ókvæðisorðum á almannafæri.
Til að vinna gegn misrétti og fordómum í garð fólks af erlendum uppruna á Íslandi taka Mannréttindaskrifstofa Íslands, Þjóðkirkjan, deildir Rauða krossinns á höfuðborgarsvæðinu, Soka Gakkai Íslandi og SEEDS þátt í Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti með ýmsum hætti.
Fimmtudaginn 18. mars frá kl. 16:00 til 18:00 bjóða ofangreind samtök þér að taka þátt í Evrópuvikunni en þá standa þau að viðburðum gegn kynþáttamisrétti á þremur stöðum á landinu.
Höfuðborgarsvæðið
Viðburðurinn verður haldinn á fyrstu hæð Smáralindar en þar safnast unglingar frá ýmsum samtökum saman kl. 16:00 og munu þau bjóða upp á fjölmenningarsspjall, sælgæti og barmmerki ásamt fjölbreyttum skemmtiatriðum., Sirkus Ísland verður á staðnum, "break"sýning og síðan danskennsla verður í boði, gjörningur verður framinn, og einnig verða söngatriði, fjölmenningar-"twister" leikur, fingrafaralistaverk og fleira milli kl.16:30 -18:00.
Akureyri
Unglingar mæta kl.16.30 á Glerártorg og kynna fræðsluefni gegn mismunun fyrir vegfarendum á Glerártorgi ásamt því að sýna dans- og tónlistaratriði.
Ísafjörður
Unglingar munu safnast saman í verslunarmiðstöðinni Neista kl. 16:30 -18:00 og spjalla við vegfarendur um fordóma og mismunun.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project