Fréttir

Þögul þjáning: ráðstefna um kyndbundið ofbeldi

11.3.2010




ÞÖGUL ÞJÁNING

Ráðstefna um kynbundið ofbeldi

Staðsetning: Háskólinn á Akureyri stofa L201 á Sólborg.

Útsending til: Miðstöð símenntunar, Menntasetrinu við Lækinn Hafnarfirði. Háskólasetur Vestfjarða, Suðurgötu 12 Ísafirði.

Tími: Föstudagur 16. apríl kl. 09.00-16:30.

Ráðstefnustjóri: Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

Skráning: Á slóðinni http://www.unak.is/radstefnur fyrir 12. apríl.

Þátttökugjald: 10.000 kr.

Hér er hægt að nálgast pdf skjal með upplýsingum eins og þær birtast hér á síðunni.



Dagskrá:

Kl. 08:30 Afhending ráðstefnugagna og greiðsla þátttökugjalds.

Kl. 09:00 Setning ráðstefnu: Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

Kl. 09:10 „Sannleikurinn gerir mann frjálsan" Kynferðislegt ofbeldi gegn drengjum:

Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, MS í heilbrigðisvísindum, doktorsnemi í Lýðheilsuvísindum við HÍ.

Kl. 09:40 Maður, kona, barn: Reynsla kvenna af heimilisofbeldi á meðgöngu:

Ástþóra Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og meistaranemi við HA.

Kl. 10:10 Er ástæða til að spyrja um ofbeldi á meðgöngu?

Sigríður Sía Jónsdóttir, ljósmóðir MS, lektor við HA og aðjúnkt við HÍ.

Kl. 10:40 Kaffi

Kl. 11:00 Meðferðarúrræði fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis:

Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur, Áfallamiðstöð Landspítala.

Kl. 11.30 Þverfagleg meðferðarúrræði fyrir fullorðna þolendur kynferðislegs ofbeldis í æsku: Turid Kavli, sálfræðingur á meðferðardeild fyrir fullorðna þolendur kynferðislegs ofbeldis í æsku í Betania Malvik í Noregi.

Kl. 12:30 Hádegi

Kl. 13:20 Ofbeldi í nánum samböndum, niðurstöður rannsóknar á gögnum: Kvennaathvarfsins: Elva Dögg Ásud. Kristinsdóttir ML nemi í lögfræði við HR.

Kl. 13:50 Ungir gerendur, kynning á meðferðarúrræðum:

Anna Kristín Newton, réttarsálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun.

Kl. 14:20 Vændi á Íslandi: Gísli Hrafn Atlason mannfræðingur.

Kl. 14:50 Kaffi

Kl. 15:10 Vændi og mansal á Íslandi, dómur í máli Catalina Mikue Ncogo:

Hulda María Stefánsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá embætti Ríkissaksóknara.

Kl. 15.40 „Því ekki að segja frá því sem gerðist?" Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur í refsirétti og afbrotafræði við lagadeild HR fjallar um kynferðisbrot gegn börnum.

Kl.16:10 Ráðstefnulok

Háskólinn á Akureyri og Jafnréttisstofa

unakjafnrettisstofa



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica