Fréttir
Við óskum eftir félagsvinum!
Garðabæjardeild Rauða krosssins óskar eftir sjálfboðaliðum.
Við óskum eftir félagsvinum!
Finnst þér huggulegt að drekka kaffi og spjalla eða gera eitthvað skemmtilegt í góðum félagsskap? Hefur þú áhuga á að láta gott af þér leiða og opna dyr samfélagsins fyrir annarri manneskju?
Félagsvinur er sjálfboðaliði sem veitir manneskju af erlendum uppruna stuðning við að fóta sig í íslensku samfélagi. Hægt er að velja á milli tveggja verkefna: Félagsvinur kvenna af erlendum uppruna þar sem tengdar eru saman tvær konur sem þróa með sér eins konar vináttusamband þar sem markmið og þróun sambandsins eru ákveðin í sameiningu. Hins vegar Félagsvinur barna af erlendum uppruna þar sem sjálfboðaliðinn veitir barninu aukið bakland í hinu nýja samfélagi sem felur í sér að gera eitthvað skemmtilegt með barninu, aðstoða við heimanám eða tómstundagaman.
Þátttaka í verkefnunum tekur ekki mikinn tíma, aðeins fáeinar klukkustundir á mánuði, en þessar klukkustundir geta gert gæfumuninn fyrir einstaklinga sem vilja aðlagast breyttum lífsháttum, læra tungumálið, kynnast Íslendingum og verða meiri þátttakendur í samfélaginu.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Erlu Björgu, í síma 565-9494 eða erla@redcross.is
Meira um verkefnið: www.redcross.is/gardabaer


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project