Fréttir

Njótum fjölbreytileikans!

Samkeppni um merki Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti

25.2.2010

Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti er 13. til 21. mars nk. og þá munu Mannréttindaskrifstofa Íslands, ásamt Rauða krossinum, Þjóðkirkjunni, Soka Gakkai og Jafningjafræðslunni standa fyrir ýmsum viðburðum undir yfirskrift átaksins sem að þessu sinni er Njótum fjölbreytileikans!

Mannréttindaskrifstofa Íslands efnir nú til samkeppni um merki vikunnar með stuðningi frá Progress-áætlun Evrópusambandsins. Verðlaun fyrir bestu myndina eru 700 Evrur. Frestur er til 4. mars 2010.

Við leitum að merki/mynd sem nota má veggspjöld, póstkort, bæklinga, boli, barmmerki og jafnvel fræðsluefni. Þema ársins í ár eru hlaupkallar og yfirskriftin, eins og áður segir: Njótum fjölbreytileikans!

Allir eru jafnir óháð kynþætti, kyni, fötlun, aldri eða trúarskoðunum. Merkið/myndin verður á einhvern hátt að nota hlaupkalla til að koma skilaboðum gegn mismunun á framfæri.

Nánari upplýsingar er að finna ofarlega á heimasíðu okkar og um Evrópuvikuna má lesa hér.  

 

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Pieper í síma 552-2720 og steinunn@mannrettindi.is.

 


Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica