Fréttir

Námskeið um eftirlitskerfi alþjóðasamninga og um reglubundna endurskoðun

1.2.2010

Frá 3. til 14. maí mun International Service for Human Rights (ISHR) halda námskeið um eftirlitskerfi alþjóðasamninga og um reglubundna endurskoðun (e. universal periodic review, UPR). Námskeiðið verður haldið samhliða 44. fundi nefndar gegn pyntingum (CAT), nefndar um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (CESCR) og 8. fundi UPR.

Þátttakendur munu fá tækifæri til að fylgjast með fundum CAT, CESCR og UPR, hitta nefndarmeðlimi, aðra embættismenn Sameinuðu þjóðanna, diplómata og fulltrúa frjálsra félagasamtaka.

Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem starfa að mannréttindavernd og stofnunum sem geta notfært sér alþjóðlega mannréttindakerfið í starfi sínu. Þátttakendur fá kynningu á hlutverki og virkni eftirlitskerfis Sameinuðu þjóðanna og UPR. Einnig verður boðið upp á kennslu í lobbýisma og málsvörn.

Frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á http://ishr.us1.list-manage.com/track/click?u=97549cf8cb507607389fe76eb&id=9c104cbd2c&e=9e268f615c>.

Hafir þú áhuga á að skrá þig á námskeiðið vinsamlegast sæktu um á http://ishr.us1.list-manage.com/track/click?u=97549cf8cb507607389fe76eb&id=3eaa34e657&e=9e268f615c>.



 

 

Hliðarval


 

Leturstærð: