Fréttir

Ráðgjöf fyrir innflytjendur í Rauðakrosshúsinu

29.1.2010

Ráðgjöf fyrir innflytjendur í Rauðakrosshúsinu

Alla miðvikudaga kl. 14:00-16:00 er boðið upp á ráðgjöf fyrir innflytjendur. Ráðgjöfin er viðbót við þá aðstoð sem nú þegar er í boði í Rauðakrosshúsinu þar má sérstaklega nefna sálrænan stuðning og ráðgjöf um þau úrræði sem í boði eru í samfélaginu. Í Rauðakrosshúsinu eru sjálfboðaliðar með víðtæka reynslu sem aðstoða gesti við leysa úr ýmsum málum og þar er einnig hægt að fá sérfræðiviðtöl hjá sálfræðing og almenna lögfræðiráðgjöf.

Sérsniðin lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur er nú í boði Rauðakrosshúsinu einkum um eftirfarandi viðfangsefni:

? Samskipti við hið opinbera
o dvalarleyfi, atvinnuleyfi, ríkisborgararéttur
? Réttindagæsla og aðstoð
o heilbrigðismál

o stéttarfélög

o félagslega kerfið

? Fjölskyldumál
o skilnaður

o forsjárdeila

Ekki er hægt að panta tíma, heldur getur fólk komið á milli 14 og 16 á miðvikudögum í Rauðakrosshúsið. Ef þörf er á túlki þarf að tilkynna starfsmönnum Rauðakrosshússins það eigi síðar en degi fyrir heimsókn þ.e. á þriðjudegi í síma 570 4000.

Lögfræðingarnir sem veita ráðgjöf í Rauðakrosshúsinu eru: Gentiana Collaku og Katla Þorsteinsdóttir.

ATH. Ef gestir þurfa almenna lögfræðiráðgjöf sem ekki snýr að ofangreindum atriðum geta þeir fengið aðstoð frá lögfræðingum Lögfræðiskrifstofu Reykjavíkur eða Versus eins og aðrir gestir hússins.

Með bestu kveðju,/Best regards,
Paola Cardenas
verkefnisstjóri/Project Manager
Rauði kross Íslands / Icelandic Red Cross
Sími/Telephone +354 570 4000 / gsm 869 8261



 

 

Hliðarval


 

Leturstærð: