Kompás - handbók um mannréttindafræðslu
Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Námsgagnastofnun hafa látið þýða og gefa út á íslensku bókina KOMPÁS, en hún kom fyrst út hjá Evrópuráðinu árið 2002.
Kompás er handbók í mannréttindafræðslu sem er ætluð þeim sem starfa í skólum eða með börnum og unglingum á vettvangi félags-, æskulýðs- og tómstundastarfs. Bókin nýtist bæði fagfólki, forystufólki í félagsstarfi og sjálfboðaliðum.
Í bókinni er að finna hugmyndir og verkefni sem ætlað er að virkja og vekja jákvæða vitund ungs fólks um mannréttindi. Áhersla er á markmið sem snúa að þekkingu og skilningi, færni, viðhorfum og gildum.
Upplýsingar um Handbókina Kompás er hægt að nálgast á vef Námsgagnastofnunar þar sem einnig er hægt að kaupa eintak. Á sömu síðu er einnig að finna rafræna útgáfu af bókinni.
Á síðu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins eru einnig upplýsingar um Kompás en þegar þetta er ritað (23.10.2010) eru hlekkir þar óvirkir.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project