Fréttir
Í þokukenndri veröld
Hann krefst þess að ég slíti tengslin við vini mína og heldur því fram að þeir notfæri sér mig og baktali mig. Hann segir mér frá þessu vegna þess að hann elskar mig og reynir að hjálpa mér. ? Þetta ruglar mig í ríminu. Þegar ég er ein upplifi ég þetta sem stjórnsemi af hans hálfu. Veruleika sem hann vill að ég geri að mínum, en þegar hann útskýrir þetta fyrir mér blíðlega og ástúðlega finnst mér sem um ímyndun hafi verið að ræða. ? Ég lifi í ótta við að espa hann upp. Að anda er það eina sem ég geri af sjálfsdáðum, allt annað þarf ég að gera vegna hlýðni við hann. ? Ég veit ekki hvað gerðist, ég veit það ekki, en augnaráð hans myrkvaðist og hinn persónuleiki hans kom fram.
Þetta textabrot er úr bók Elena Stoyanova Dagbók óttans. Hún lýsir hér andlegu ofbeldi sem hún bjó við. Frásögn hennar er samhljóma reynslu margra kvenna sem búa við andlegt ofbeldi.
Andlegt ofbeldi lýtur að stjórn og er gjarnan sett í búning gæsku, og greiðasemi. Vinarþel og góðsemi, en þar erum við hvað varnarlausust. Vefurinn er vafinn án þess að vörnum verði við komið enda erfitt að koma auga á hann og enn erfiðara að losna úr hinum vandlega spunna vef.
Í ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf kemur fram að algengasta orsök þess að konur leita þangað er sú að þær hafa verið beittar andlegu ofbeldi. Í skýrslunni segir:
Andlegu ofbeldi hefur verið líkt við köngulóarvef sem er ósýnilegur í fljótu bragði og vandlega spunninn. Þannig er vísað til þess hve erfitt er að koma auga á þess konar ástand, jafnvel fyrir þá einstaklinga sem sjálfir eru flæktir í vefinn.
Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar kemur fram að alþjóðlegar rannsóknir á ofbeldi gegn konum hafa að mestu fjallað um líkamlegt ofbeldi vegna þess að auðveldara er að skilgreina það og mæla. Rannsóknir hafa þó gefið til kynna að sumum konum finnst mun erfiðara að upplifa andlegt ofbeldi en líkamlegt.
Það er því afar mikilvægt að opna augu okkar fyrir hinum ýmsu birtingarmyndum ofbeldis. Einungis með því að þekkja eðli og birtingarmyndir ofbeldis getum við tekist á við það og vonandi upprætt það með öllu.


16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi
Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti
Herferð gegn fordómum
Vefleikurinn Flótti: Í sporum flóttamanns
The Human Rights Education Project