Fréttir

Íslenskir stúdentar kyssast gegn fordómum í Litháen

Fordómafullri löggjöf litháenska þingsins mótmælt

3.12.2009

Fimmtudaginn 26. nóvember mótmælti hópur hinsegin stúdenta fordómafullri löggjöf litháenska þingsins í garð sam- og tvíkynhneigðra með því að kyssast fyrir framan þinghúsið í Vilnius. Um það bil tíu stúdentar tóku þátt í þessari friðsamlegu aðgerð. Lögreglan var kölluð á staðinn og vakti kossaflensið ýmist gleði eða hneykslan starfsmanna þingsins. Myndir og myndskeið sem litháenskir fjölmiðlar birtu á netinu kölluðu fram óttaslegin viðbrögð almennings um áhrif slíkra kossa á börn.

Aðgerðin var skipulögð til að vekja athygli á fordómum stjórnvalda sem brjóta gegn mannréttindum hinsegin fólks í Litháen. Skipuleggjandi viðburðarins er ANSO, samtök norrænna, baltneskra og pólskra hinsegin stúdentafélaga, í samstarfi við Q - félag hinsegin stúdenta á Íslandi og fleiri hinsegin stúdentafélög.

„Í Litháen eru miklir fordómar gagnvert hinsegin fólki og lagaleg réttindi þess eru afar slæm á evrópskan mælikvarða. Aðstæðurnar munu þó versna til muna þegar nýja barnaverndarlöggjöfin tekur gildi í mars 2010 en samkvæmt henni er öll opinber umræða um sam- og tvíkynhneigð bönnuð með lögum,“ segir Ásta Kristín Benediktsdóttir, varaformaður Q-félags hinsegin stúdenta.

Í þessari viku stendur ANSO fyrir fjögurra daga ráðstefnu um hinsegin málefni í Vilnius til að vekja athygli á aðstæðunum í Litháen og veita hinsegin stúdentum í Litháen alþjóðlegan stuðning. ANSO hefur áhyggjur af stöðu mannréttinda hinsegin fólks í Litháen og þeim fordómum og misrétti sem hinsegin fólk þarf að lifa við samkvæmt þessari nýju löggjöf.

„Með þessum mótmælum vonumst við til að fanga athygli stjórnvalda í okkar heimalöndum og beita þannig litháensk stjórnvöld þrýstingi til að afturkalla þessa löggjöf og vernda almenn mannréttindi,“ segir Ann Kristin Fagerlund, varaforseti ANSO.

Myndir frá mótmælunum má finna hér og nálgast má frekari upplýsingar og myndir á heimasíðum þeirra ANSO: hinsegin.wordpress.com , anso.dk og ansoblog.wordpress.com

Umfjöllun litháenskra fjölmiðla um kossana fyrir framan þinghúsið

Um litháísku löggjöfina (The Law on the Protection of Minors against Detrimental Effect of Public Information) og Evrópuráðið

Ályktun Q - félags hinsegin stúdenta um litháísku löggjöfina

Umfjöllun um ályktunina á visi.is



 

 

Hliðarval


 

Leturstærð: